28.03.1941
Neðri deild: 25. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins

Einar Olgeirsson:

Það er eitt atriði, sem ég vil gera fyrir spurn um til hæstv. stj. í sambandi við þetta frv.

1. gr. frv. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Greiða skal verðlagsuppbætur á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkis og ríkisstofnana og á eftirlaun úr ríkissjóði samkvæmt fyrirmælum þessara laga“

Það er ómögulegt að skilja þessa gr. öðruvísi en svo, að ríkið ætli að greiða verðlagsuppbót einnig þeim starfsmönnum sínum, sem eru ekki fastráðnir, t. d. þeim, sem eru í þjónustu pósts, án þess að þeir séu fastráðnir menn, en eru kannske allt að því fastir starfsmenn. Nú hefur þetta verið þannig, að þetta hefur ekki verið gert áður. Þessum mönnum hefur ekki verið greidd uppbót, og nær slíkt engri átt. Ég vil láta þetta koma fram hér, að það sé meiningin að skilja 1. á þennan hátt, og þá vil ég beina þeirri fyrirspurn til ríkisstj., hvort hún muni ekki fram fylgja 1. með þessum skilningi.

Þá vil ég segja það í sambandi við nál. fjhn., að þar kemur fram ný og mjög skemmtileg skoðun, og verð að lýsa ánægju minni yfir. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Jafnframt kom sú skoðun fram í n., að þing og stjórn tækju á sig, með samþykkt þessa frv., siðferðilega ábyrgð um að beita áhrifum sínum til að framleiðslustéttir þjóðfélagsins fengju a. m. k. samskonar hækkun á tekjum sínum, og yrði að hafa vakandi auga á því, að réttur þeirra yrði eigi fyrir borð borinn: ` Það er skemmtilegt að fá þannig í n. viðurkenningu fyrir því, að m. a. stærsta framleiðslustéttin, verkalýðurinn, eigi eftir samþykkt þessa frv. siðferðilega kröfu á hendur þingi og stj. um að fá þetta bælt upp, því að í nál. er ekkert tekið fram um tímakaup, heldur aðeins sams konar hækkun á tekjum sínum, því að svo framarlega sem svo illa skyldi fara, að verkalýðurinn, sem er stærsti seljandi hér á innlendum markaði, — því að hér er vinnuaflið keypt og selt eins og vara —, yrði fyrir tekjurýrnun, af því að innlendi markaðurinn væri slæmur, t. d. ef atvinnuleysi yrði hjá verkalýðnum, þá á hann Samkv. þessu kröfu á hendur þingi og .stj. um, að úr þessu verði bætt.

Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu um leið og frv. færi hér í gegn.