20.02.1941
Efri deild: 4. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (3011)
13. mál, fiskveiðar í landhelgi
Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Eftir hernám Noregs komu hingað nokkur norsk veiðiskip. Eigendur þessara skipa, eða skipshafnirnar, sóttu um leyfi til að fá að leggja hér afla á land umfram það, sem leyft er í gildandi 1. Stj. vildi ekki verða við þessum beiðnum, svo sem þær voru fram bornar, en taldi þó æskilegt að geta veitt mönnum þessum nokkra úrlausn. Og þótt hún teldi það neyðarúrræði að þurfa að breyta gildandi 1. á þann hátt, sem gert var með bráðabirgðal., var það þó talin hagkvæm leið til að greiða vandræði þeirra. Hins vegar var stj. á einu máli um, að hafa bæri þessa breyt. eins lítilvæga og framast væri unnt, svo að sem minnst skarð væri höggvið í þann varnarmúr, sem l. eru. Var því horfið að því ráði að heimila íslenzkum ríkisborgurum, sem fullnægja 1. frá 19. júní 1922, að leigja erlend skip, og var þar aðeins átt við þessi norsku skip. Jafnframt var heimilað að hafa erlendar skipshafnir á þeim. Það voru, eins og kunnugt er, ekki nema fá skip, sem höfðu gott af þessu, og ef stj. hefði vitað þetta fyrir fram, þá hefði mátt athuga, hvort ekki væri betra að leggja á sig nokkurn fjárhagslegan bagga. En sporið var nú stigið, og var um það að ræða að skapa þessum flóttamönnum nokkra afkomumöguleika sumarmánuðina. — Stj. er sammála um að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn.