28.03.1941
Neðri deild: 25. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

56. mál, verðlagsuppót á laun embættis- og starfsmanna ríkisins

*Einar Olgeirsson:

Ég þakka hv. frsm. fyrir yfirlýsing hans um það, hvernig skilja bæri ákvæði 1. gr. frv. Hvað snertir nál., þá held ég mig fast við þann skilning á hinum umræddu tilvitnunum, er ég tel vera hinn eina rétta, að ef þetta augnabliksástand, sem nú ríkir í landinu, breytist, þá taki ríkið á sig siðferðilega ábyrgð gagnvart verkamönnunum, gæti þess, „að réttur þeirra verði ekki fyrir borð borinn“, eins og segir í nál. Að verkamennirnir séu ekki framleiðendur, er að sjálfsögðu hin mesta firra. Eða telur hv. frsm. kannske þá, sem eignarréttinn hafa yfir togurunum, bara framleiðendur, aðra ekki? (SvbH: Ekki starfa verkamenn eingöngu að framleiðslu). Jú, nær eingöngu. Bílstjórinn, sem keyrir fiskinn úr skipunum, maðurinn, sem mjólkar kýrnar, og yfirhöfuð allir, sem slík hliðstæð verk vinna, . eru framleiðendur. Hitt er hinn mesti misskilningur, að þeir, sem framleiðslutækin eiga, séu framleiðendur, — menn, sem aldrei koma nærri því sjálfir að starfrækja þau. Annars finnst mér sem nú sé allmjög farið að fenna yfir vígorð Framsóknarfl. og framsóknarstj., sem kallaði sig „stjórn hinna vinnandi stétta“, og kvað það hart á sínum tíma af íhaldsmönnum að vilja ganga fram hjá stærsta framleiðandanum, hinum vinnandi manni, en fara nú í flæmingi undan því að vilja viðurkenna rétt og aðstöðu þessa sama vinnandi manns í þjóðfélaginu.

Hv. frsm. taldi, að tekjur sjómanna þeirra, sem á útlönd sigla, væru gífurlega háar. En þetta er ekki rétt. Menn skiptast á um að sigla, fara margir hverjir ekki nema þriðja hvern túr. Auk þess er það ekki nema á allra mesta áhættusvæðinu, sem kauphækkun kemst upp í 300%., Annars er munurinn á kaupi háseta og verkamanna, sem í landi vinna, ekki eins mikill og margur heldur. Það eru meira að segja mörg tilfelli, að verkamaðurinn ber meira úr býtum en sjómaðurinn. Það er því ekki nema ein stétt manna í þessu landi, sem hefur stórbreytta aðstöðu frá því, sem áður var, það eru hinir skattfrjálsu togaraeigendur. Í samanburði við þá verða embættismenn, sjómenn og verkamenn allir í einum hóp, lágtekjumenn.