10.05.1941
Neðri deild: 56. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (3062)
31. mál, raforkusjóður
Haraldur Guðmundsson:
Eins og ég drap á við 2. umr., þá var ég ekki sammála samnm. mínum um afgr. þessa frv., og gerði ég þá grein fyrir, í hverju ágreiningurinn lægi. Ég ber nú fram brtt. á þskj. 407. Get ég verið stuttorður um þær, m. a. af því að ég gat þeirra að nokkru við 2. umr.
1. brtt. er í þá átt að fella niður 2. og 3. lið 2. gr. frv. eins og það er nú, en ég legg hins vegar til, að framlag ríkissjóðs, sem er ákveðið í 1. lið gr. 100 þús. kr., verði hækkað í 200 þús. kr., þannig að vaxtalaust stofnfé sjóðsins verði 2 millj. kr. — Það liggur ekki fyrir fullkomin vitneskja um, hverra tekna megi vænta af þeim skatti, sem er gert ráð fyrir að leggja á rafveitur samkv. 2. gr., en í byrjun verður hann sjálfsagt ekki einu sinni eins hár og gert er ráð fyrir, að framlag ríkissjóðs hækki, en fer að sjálfsögðu vaxandi með tímanum. Ég skal ekki endurtaka þau rök, sem ég bar fram við 2. umr. Það er að minni hyggju rangt að leggja ákveðinn skatt á hvert kw. í þeim stöðvum, sem fyrir eru, án tillits til efnahags og afkomu, til þess að styrkja aðra menn í landinu til þess að fá lán með 3% vöxtum til langs tíma, eða helmingi lægri vöxtum en þær rafveitur, sem nú eru starfandi og eiga að borga þennan skatt, verða að greiða.
2. till. mín er um heimild til að gefa út handhafavaxtabréf, er nemi að nafnverði allt að tvöföldum þeim höfuðstól, sem sjóðurinn hefur á hverjum tíma. Ég hafði ætlað mér upphaflega að hafa nokkuð önnur ákvæði um útgáfu bréfanna, en þar sem ég sá, að d. féllst með miklum atkvæðamun á þetta fyrirkomulag til handa iðnlánasjóði, þótti mér rétt að vita, hvort sömu menn gætu ekki fallizt á svipað fyrirkomulag við rafveitulánasjóðinn. Að sjálfsögðu er með þessu fyrirkomulagi meira vald lagt í hendur ráðh. en venjulegt er um útgáfu bréfa, en það eru svo fastar venjur um slíkar útgáfur, að ég tel það ekki hættulegt, með því að vextir eru ekki ákveðnir hér. Ég tel, að þar verði að fara eftir því, sem fjármálaástandið á hverjum tíma gerir kleift.
Ég hef ekki gert brtt. við 6. gr., þar sem gert er ráð fyrir, að útlánsvextir sjóðsins séu 3%, en það verður að vera visst hlutfall milli útlánsvaxta sjóðsins og þeirra vaxta, sem greiddir eru af þessum bréfum, með tilliti til, hvað sú upphæð, sem ríkið leggur sjóðnum, er mikil.
3. brtt. mín er við 5. gr., á þá leið, að aftan við gr. bætist: Sjóðurinn veitir eigi lán til að hyggja einkaraforkuver á þeim stöðum, sem áætlað er, að félagsvirkjun eða félagsrafveitur nái til, ef ætla má, að bygging slíkra raforkuvera verði til að tefja eða koma í veg fyrir þessar félagsframkvæmdir. Ég veit að vísu, að eins og gr. er orðuð nú, á Búnaðarbankinn að veita lánin að fengnum till. trúnaðarmanna ríkisstj. um rafveitumál, en eftir þeim skilningi, sem nú er lagður í orðin „að fengnum tillögum“, þá er stjórn bankans ekki bundin við að fara eftir þeim till. Ég hygg, að menn geti verið sammála um, að það sé ákaflega misráðið, að opinber sjóður sé stofnaður með þeim hætti. sem hér er gert ráð fyrir, ef hann á svo að veita lán til einkastöðva, sem tefðu fyrir eða kæmu algerlega í veg fyrir, að byggðar yrðu raforkuveitur, sem gætu komið heilum héruðum að notum, en á því er veruleg hætta, ef einstakir bæir eða bæjahverfi tækju sig út úr með sína minni virkjun, því að það gæti eyðilagt möguleika fyrir stærri virkjun síðar. Ég held því, að nauðsynlegt sé að bæta þessu ákvæði inn í gr., og fæ ég ekki séð, að undir neinum kringumstæðum sé hætta á því, að þessu yrði misbeitt svo, að það gæti valdið truflunum á starfsemi sjóðsins.
Ég þarf ekki að svo stöddu að hafa um þetta fleiri orð. Ég vildi mega vænta þess, að hv. þdm. féllust á till. mínar. Samkv. þeim eru starfsmöguleikar sjóðsins og framlag til hans aukið verulega, svo að ef þær eru samþ., eru að minni hyggju meiri líkur til, að hann verði fær um að fullnægja því ætlunarverki, sem honum er ætlað. Rétt þykir mér að drepa á það, sem ég sagði við 2. umr., að þótt þær verði samþ., þá er fjarri því, að með samþ. þessa frv. yrði séð fyrir endanlegri lausn raforkuveitumálanna í byggðum landsins. Það er að sjálfsögðu stærra mál en svo, að þetta frv. nægi í því efni. Hitt mætti verða, að af starfsemi þessa sjóðs í nokkur ár fengist glögg reynsla, sem mætti byggja frekari framkvæmdir á síðar meir.
Brtt. á þskj. 105 tel ég, að skipti ekki neinu máli, og sé ekki ástæðu til að vera með henni.