10.05.1941
Neðri deild: 56. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (3066)
31. mál, raforkusjóður
Pétur Ottesen:
Það ber nú hálfeinkennilega að, þetta. Málið hefur nú legið fyrir þessari hv. d. í hálfan annan mánuð, og loksins þegar á að fara að greiða atkv. um það, er sett inn skrifl. brtt., sem er dálítið flókin og þarf verulegrar athugunar við, til þess að menn átti sig á henni. Ég veit eiginlega ekki, hvaða merkingu á að leggja í þennan drátt fyrst og fremst, sem orðinn er á málinu, og svo í það til viðbótar, hvaða aðferð er höfð við þetta, þegar málið loks kemst svo langt, að það er tekið til 3. umr. og hillir undir það, að hægt muni verða að fá atkvgr. um málið. Þetta er ekki svo að skilja hvað mig snertir, að ég hafi ekki áttað mig á skrifl. brtt., enda hef ég lesið hana áður hjá hv. flm. hennar. Hún gengur allverulega í áttina til þess að draga úr þeim hluta þessa frv., sem ætlaður er til þess að byggja upp þennan rafveitusjóð, sem er um það fé, sem á að koma í sjóðinn frá rafveitunum. Ég hef áður, ásamt þeim mönnum, sem talað hafa fyrir þessu máli, fært gild rök fyrir því fyrst og fremst, hver nauðsyn er á að hlynna að þessu máli, að reyna að koma hér á fót nokkrum vísi að slíkum sjóði sem þessum. Og það var rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Seyðf. (HG), að þrátt fyrir það, þó að sjóðurinn yrði byggður upp þannig, eins og upphaflega var ætlazt til samkv. þessu frv., þá felur það ekki í sér þá lausn á þessu stóra máli, sem við allir hljótum að vera sammála um, að nauðsyn væri á. Hins vegar, eins og til þessa sjóðs var stofnað í upphafi í þessu frv., sem um það var flutt, þá er það verulegur vísir í þessa átt. Hitt er svo annað mál, að að því leyti sem samþ. kunna að verða brtt., sem draga úr gildi þeirra ákvæða, sem felast í upphaflegu ákvæðum frv., þá á þetta mál þeim mun lengra í land til þess að þetta frv., ef að l. verður, geti orðið að þeim notum, sem til var ætlazt. Það framlag, sem hv. þm. Seyðf. leggur til, að sjóðurinn fái, er einnig ótryggara heldur en það fé, sem ætlað er til sjóðsins samkv. till. frv., auk þess sem það er minna. Hv. þm. Seyðf. ætlast til, að þetta, að fella niður gjaldið frá rafveitunum, sé bætt upp með því að hækka um helming tillagið úr ríkissjóði. Hins vegar gerir hann ekki till. um að breyta ákvæðunum um það, að þetta framlag skuli aðeins standa í 10 ár, og að þar með verði látið staðar numið. En í till. minni og líka í till. hv. þm. V.-Húnv. var gert ráð fyrir því, að þetta yrði á þá leið, að skatturinn á rafveiturnar í þessu skyni væri ekki tímabundinn, heldur væri gengið út frá því, að sá skattur færi vaxandi, eftir því sem afkomuskilyrði þessara fyrirtækja, sem eiga að inna skattinn af hendi, bötnuðu, og þau þannig yrðu sterkari til þess að standa undir þessum skatti. Og ég verð að segja, að ef menn annars með alvöru ætla að ganga að því að leggja grundvöll að því, að sem flestir af íbúum þessa lands, þar sem annars er aðstaða til að koma upp rafveitum, geti orðið aðnjótandi þessara hlunninda, þá er það sannarlega hvort tveggja, sem verður að hafa í huga í þessu efni, að það má engan veginn skerða þau ákvæði í þessu efni, sem hér voru í þessu upphaflega frv., eða frá því, sem samþ. var hér við 2. umr., og einnig hitt, hver aðstöðumunur er hjá þeim rafveitufyrirtækjum annars vegar, sem eiga að greiða þennan skatt, og hinna hins vegar, sem maður getur búizt við, að muni verða reist á næstunni og ætlað er að njóta styrks með þessum sjóði. Og ég er sannfærður um það, að þó að hér sé lagt til að taka nokkuð lægri vexti af lánum til þeirra fyrirtækja, sem reist yrðu hér eftir, heldur en vextir eru af lánum til þeirra fyrirtækja, sem nú eru komin á fót, þá er aðstöðumunurinn svo mikill hjá þessum fyrirtækjum annars vegar, sem reist verða og koma til með að njóta hagnaðar af þessum l., og hinna, sem komin eru; að þessi fríðindi jafna engan veginn þann aðstöðumun. Ég vil þess vegna mjög taka undir það með hv. frsm. meiri hl. fjhn., að ekki verði röskun á þeirri aðstöðu, sem rafveitufyrirtækjum í framtíðinni var ákveðin í frv. við 2. umr. þessa máls, þannig að ekki verði skert það fjárframlag, sem ætlað er til sjóðsins, frá því, sem er í því frv., sem nú liggur hér fyrir hv. þd. Við þekkjum það auk þess af reynslunni, að Það hefur oftar en einu sinni komið fyrir, að þó að búið hafi verið að heita fjárframlagi úr ríkissjóði til ýmissa fyrirtækja, þá hefur Alþ. fundið sig knúið til að kippa að sér hendinni
og fella niður greiðslur um lengri eða skemmri tíma, svo að stuðningur, sem eftir 1. hefur verið um að ræða, hefur verið mjög skertur og stundum algerlega burt numinn. Í sambandi við þetta ber alveg sérstaklega að skoða þann mismun, sem er á frv. eins og það er og brtt. hv. þm. Seyðf.
Ég vænti þess fastlega, að nú verði gerð alvara úr því að leggja grundvöll að þeirri sjóðmyndun. sem hér er um að ræða, og að þeir möguleikar, sem sjóðurinn á að skapa, verði ekki skertir frá því, sem nú er ákveðið í frv. Við megum minnast. þess, að á síðasta Alþ. fékk sams konar frv. afgr. héðan úr hv. þd. í mjög svipuðum búningi, sem þetta frv. er í, að öðru leyti en því, að nú hefur verið tekin upp í frv. lánsheimild handa sjóðnum. En það er nú svo, að þau verkefni, sem fyrir okkur liggja í rafveitumálum, eru þeim erfiðleikum háð, að slíkur sjóður, sem hér er gert ráð fyrir, kemur ekki að tilætluðum notum, nema hann hafi yfir að ráða töluvert miklu sjálfseignarfé. Þó að í þéttbýli hafi með góðum árangri verið hægt að starfrækja rafveitufyrirtæki með lánsfé, þá verður, eftir því sem aðstaðan er erfiðari um rafveitur, eins og hún er til sveita, þyngra. undir fæti um rekstur rafveitufyrirtækjanna.
Ég hef áður á það bent, hve mikilsverðs samstarfs er stofnað til með þessu framlagi frá þessum fyrirtækjum, sem hér er um að ræða, til þess að hrinda áfram þessu mikla nauðsynjamáli. Og ég hef áður skýrt frá því, að ég hef rætt um þetta við rafmagnsfræðingana Steingrím Jónsson og Jakob Gíslason og notið aðstoðar þeirra. Og ég gat ekki skilið annað á þeim um rafveituskattinn að því er Reykjavík snerti en að þeir álitu, að hann væri ekki svo þungur, að hann yrði Reykjavík til nokkurs hnekkis. Slíkt hið sama mun og mega segja um þær rafmagnsstöðvar aðrar, sem hann á að ná til samkv. frv.