29.04.1941
Neðri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (3112)
37. mál, sala á spildu úr Neslandi í Selvogi
Frsm. meiri hl. (Steingrímur Steinþórsson):
Frv. þetta um sölu á spildu úr landi jarðarinnar Ness í Selvogi, sem vísað var til landbn., hefur nú legið alllengi hjá n. og verið athugað allrækilega af henni, og m. a., eins og eðlilegt var, leitaði n. álits sandgræðslustjóra um þetta mál, sem sérstaklega heyrði undir hann, þar sem hér er um að ræða eitt af þeim svæðum, sem tekið hefur verið sérstaklega til að verja gegn uppblæstri. Landbn. gat ekki orðið sammála um afgreiðslu þessa máls, eins og nál. á þskj. 233 frá meiri hl. og 204 frá minni hl. bera með sér. Við, sem erum í meiri hl. n. og leggjum til, að frv. verði ekki samþ., heldur fellt af d., teljum, að í þeirri álitsgerð, sem sandgræðslustjóri lét n. í té, felist full rök fyrir því, að ekki sé rétt að taka þetta land, sem hér um ræðir, undan þeirri vernd, sem sandgræðslan veitir því, eins og nú horfir. Sandgræðslustjóri leggur alveg á móti því, að þessi landspilda sé tekin nú þegar og afhent til frjálsrar notkunar. Eins og vitað er, þá er sauðfé mesti vargur í því landi, sem verið er að græða upp, og sandgræðslustjóri heldur, að það sé hvað hættulegast, að sauðfé hafi alveg frjálsan og óhindraðan aðgang að landi, sem svona er ástatt um. Nú er það svo einnig, eins og hér kemur fram í nál. meiri hl., að hreppsnefnd Selvogshrepps hefur sömuleiðis mælt eindregið gegn því, að frv. þetta yrði samþ. Og þar sem þessir aðilar, annars vegar sandgræðslustjóri, sem hefur langyfirgripsmestu þekkingu á þessum málum, og hins vegar hreppsnefnd hreppsins, leggja báðir á móti því, að frv. verði að l., sáum við í meiri hl. okkur ekki fært að mæla með frv. Ég skal taka fram fyrir mína hönd, og ég hygg, að ég mæli þar fyrir hönd meiri hl., að ég get vel skilið afstöðu bóndans í Nesi í Selvogi, að hann hafi mikinn áhuga fyrir að fá meira land til umráða. Hann býr á stórri jörð og hefur fleiri hundruð fjár og finnst sjálfsagt, eins og kann að vera mjög eðlilegt, að þrengt hafi verið nokkuð að sér og sínum athöfnum, þegar þetta land var tekið frá honum. En ég lít svo á, að ekki sé hægt að taka til greina, þó að hagsmunir eins einstaks manns séu þannig fyrir borð bornir, þar sem hins vegar virðist full ástæða til að ætla, að hagsmunir alls sveitarfélagsins séu að einhverju leyti í hættu, ef frv. verður samþ. Það kemur mjög greinilega fram í áliti hreppsnefndar Selvogshrepps, að sveitarstjórnin lítur svo á, að það gæti valdið uppblæstri og hættu að meira eða minna leyti fyrir þessa litlu sveit, sem hér er um að ræða, ef frv. yrði samþ.
Þá má enn bæta því við, að Alþ. hafa borizt undirskriftir frá miklum meiri hl. bænda í Selvogshreppi um, að þetta frv. verði alls ekki gert að l. Sýnir það glöggt, að sveitarstjórnin er með álit sitt í fullu samræmi við álit mikils meiri hl. búenda í hreppnum.
Ég skal taka það fram, að við erum alls ekki mótfallnir þessu máli af því, að við viljum ekki, að bóndinn í Nesi geti fengið aukið land til umráða fyrir sitt stóra bú, svo framarlega sem það teldist hættulaust gagnvart uppblæstri. En í þessari sveit hefur á síðari árum verið stórmikið unnið að heftingu sandfoks og sandgræðslu, og meiri hl. landbn. vill ekki eiga það á hættu að samþ. þetta frv. gegn eindregnum vilja sandgræðslustjóra, hreppsnefndar og mikils meiri hl. búenda í sveitinni og setja ef til vill þar með í voða það, sem þarna hefur á unnizt í sandgræðslunni.
Ég sé svo ekki ástæðu að svo stöddu að fara um þetta fleiri orðum. Ég geri ekki ráð fyrir, að þörf sé á löngum umræðum um málið í d., því að það liggur þannig fyrir, að hv. dm. hljóta mjög fljótlega að geta áttað sig á, á hvora sveifina þeir eiga að leggjast hér.