12.03.1941
Neðri deild: 16. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í C-deild Alþingistíðinda. (3150)

53. mál, fiskveiðasjóðsgjald

Flm. (Pétur Ottesen) :

Út af þessari aths., sem fram kom hjá hv. þm. Ísaf., þá hef ég bent á leiðir til að fella niður skattinn til fiskimálan. annars vegar og hins vegar að lækka útflutningsgjaldið til ríkissjóðs. Þetta er nú sjálfsagt að athuga, og ég viðurkenni fullkomlega rök hv. þm. Ísaf., að hér er um allverulega þungan skatt að ræða fyrir útgerðina.