04.04.1941
Efri deild: 31. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég vil þakka hæstv. viðskmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur látið hér í té, — upplýsingar, sem mér þykja því miður ná skemmra heldur en þörf væri á þessu stigi málsins. Það hefði einmitt verið ástæða til fyrir hið háa Alþingi að láta þetta mál jafnvel ganga fyrir öllum öðrum innanlandsráðstöfunum og lausn annarra deilumála eins og sakir standa. Að einstakir þm. eða hópar þeirra hafa ekki hafizt handa um að hreyfa þessu máli hér á þingi, tel ég vera út af þessum orðasveimi, að það hafi sem sagt þótt liggja í loftinu, að hæstv. ríkisstj. hefði einhvern undirbúning í þessu máli, sem og er staðfest af orðum hæstv. viðskmrh. Ég verð að segja það, að mér þykir nokkuð mikill seinagangur vera á framkvæmdum hæstv. ríkisstj. Í jafnmikilvægu máli, þegar þess er gætt, að það er hvorki meira né minna en á síðastl. sumri, sem hæstv. ríkisstj. lætur sérfræðinga athuga þetta mál. Ég veit ekki, hvort ég hef réttar upplýsingar um þessa athugun, en mér hefur borizt til eyrna, að henni væri lokið, og er mér þá spurn: Hvað hindrar þá hæstv. ríkisstj. að láta skírast, þegar vatnið er við höndina og þegar rannsókn er fyrir hendi, — hvað hindrar hana þá að koma þessu mjög þýðingarmikla máli á framfæri?

Hæstv. viðskmrh. sagði, að það væru meiri agnúar á því að tryggja vörubirgðir og því um líkt í landinu heldur en fasteignir. Það kann að vera. Ég vil ekki staðhæfa, að ekki kunni að vera meiri agnúar á því. En ég vil benda á hitt, að það er næsta þýðingarmikið, að einmitt vörubirgðir og þá ekki sízt framleiðsluvörur landsmanna njóti þessara trygginga, — já, mér liggur við að segja allt eins fljótt eða jafnvel fyrr en fasteignir, því að tjón, sem verður á óvátryggðum framleiðsluvörum, getur verið svo geipilegt. Þó að maður haldi húsinu yfir höfði sér, verður það næsta þýðingarlítið fyrir afkomuna, ef framleiðsluvörurnar tapast. Ég vil leggja áherzlu á það, að tryggingar á framleiðsluvörum séu alveg eins nauðsynlegar og tryggingar á fasteignum. Ég vil benda hæstv. ríkisstj. á það, að einmitt þetta atriði, hvort trygging fæst á framleiðsluvörum landsmanna, má í raun og veru ekki liggja lengur í láginni, því eins og ég tók fram áðan, eru framleiðsluvörur landsmanna þegar farnar að safnast saman á einstaka stöðum, sem jafnvel skipta millj. kr. að verðmæti.

Að því er snertir framtíð framleiðslunnar, við skulum taka til dæmis saltsíldarframleiðsluna og framleiðslu úr síld yfir höfuð, þá er alveg nauðsynlegt, ef hægt er, að framleiðendur í landinu fái vitneskju um, hvað hæstv. ríkisstj, og Alþingi hugsar sér að gera í þessu efni. Það þarf undirbúning af hálfu einstaklinganna við þessar atvinnugreinar eins og aðrar og getur því haft afgerandi þýðingu fyrir það, hvort menn eigi að leggja út í dýran undirbúning, t. d. að bræða eða salta síld, hvort hægt verður að fá þessar vörur tryggðar eða eigi.

Ég vil þess vegna endurtaka tilmæli mín til hæstv. ríkisstj., að þessu máli verði hraðað svo, að við fáum að sjá lagt fram frv. af hálfu hæstv. ríkisstj., áður en páskafríið tefur þingið frá störfum.