28.05.1941
Neðri deild: 69. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (3225)

104. mál, hæstiréttur

Bergur Jónsson:

Eins og sést á nál. 592 og hv. frsm. hefur getið um,. hefur meiri hl. n., fjórir þm., þar á meðal ég og hv. þm. N.-Ísf., orðið sammála um að mæla með frv. með þeirri breyt., að í staðinn fyrir að í frv. er eingöngu gert ráð fyrir, að viðkomandi hafi stundað lögfræðistörf í fimm ár að afloknu lögfræðiprófi, skuli bæta inn orðunum : „að aðalatvinnu“. Enn fremur er á þskj. 592 numið brott skilyrðið um fyrstu einkunn, svo að nægjanlegt er lögfræðipróf við Háskóla Íslands eða jafngilt próf við aðra háskóla. Um þetta eru allir fjórir nm. sammála. Hins vegar teljum við hv. þm. N.-Ísf. ekki rétt, að ekki betur athuguðu máli en nú er, að víkja frá skilyrði hæstaréttarl. um það, að þeir menn, sem að öðru leyti fullnægja skilyrðum til að verða hæstaréttarmálflm., þurfi að flytja fjögur mál fyrir réttinum, þar af a. m. k. eitt opinbert mál, og sýna að dómi réttarins, að þeir séu hæfir hrm. Ég tel ekki rétt, eins og málið liggur nú fyrir, að ganga fram hjá þessu atriði eða að fella þetta prófskilyrði úr gildi. Það er kunnugt, að allt frá því að hæstiréttur var stofnaður með l. 1919 hefur þetta prófskilyrði alltaf verið, og engir aðrir fengið leyfi til að verða hrm. en þeir, sem hafa lokið því prófi. Hitt er annað mál; að við nánari athugun má vel vera, að komi í ljós, að ástæða sé til að hliðra nokkuð til við einstaka menn, sem sérstaklega góðan undirbúning hafa, t. d. þá, sem hafa verið héraðsdómslögmenn nægilega lengi og notið góðs álits, eða dómara í hæstarétti, sem er mjög einkennilegt að láta þreyta prófraun. En ég tel, að málið sé á þessu stigi ekki nægilega rannsakað til þess að fella megi burt prófskilyrðið, sem verður óhjákvæmilega til þess að gera upp á milli þeirra manna, sem hafa orðið að taka þetta próf og oft bíða talsverðan tíma, þangað til þeir geta lokið því, og svo allra hinna lögfræðinganna, sem aðeins fullnægja þeim tiltölulega litlu skilyrðum í frv., en eiga allt í einu að öðlast réttinn til að verða hrm., án þess að sýna hæfni sína á líkan hátt og hingað til hefur verið krafizt. Þess vegna legg ég með því, að þessi till. verði samþ., sem við hv. þm. N.-Ísf. flytjum, en vil taka fram — og get því tekið undir orð hv. frsm., — að ég er reiðubúinn að athuga nánar, á hvern hátt væri hægt að breyta þessu ákvæði fljótlega, eftir góða yfirvegun, þannig að hvorki væri misgert við þá menn, sem samkv. þyngri skilyrðum en þeim, sem gert er ráð fyrir í frv., hafa fengið þessi réttindi, og svo aftur hina, sem telja sér gert of erfitt að fá þessi réttindi samkv. núverandi lagaákvæðum.