21.04.1941
Neðri deild: 41. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (3244)

111. mál, Ísafjarðardjúpsbátur

*Sigurður Kristjánsson:

Ég kvaddi mér hljóðs vegna þess, að ég er vel kunnur staðháttum vestra. Þó að það sé engu við ræðu hv. frsm. að bæta, þá vil ég samt bæta hér lítils háttar við.

Ég byrja á því, að ég er þakklátur, hvernig samgmn. hefur tekið málinu. Ég geri ekki ráð fyrir, að það þurfi að búast við neinum ágreiningi, fyrst samgmn. hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að það beri að styðja þetta mál af fremsta megni. Það er brýn nauðsyn að koma á sómasamlegum bátsferðum um Ísafjarðardjúp, því að þetta er aðalsamgönguleið héraðsbúa. Staðhættir eru þannig, að þegar við berum þetta saman við hinar stóru fjárhæðir, er lagðar eru til vega, þá er þetta ekki stór upphæð, sem hér er farið fram á. Jafnframt má gera ráð fyrir, að þessi vegabót þurfi ekki hliðstætt viðhald í samanburði við aðra þjóðvegi. Jafnvel þó það þurfi að endurnýja svona skip, sem þarf á nokkurra ára fresti, þá má gera ráð fyrir, að ferðirnar beri sig, að þeir, sem nota þetta, borgi það, sem upp er sett.

Það hefði vissulega verið fróðlegt fyrir hv. þm. að vita eitthvað um forsögu Djúpbátsmálsins. En til þess þyrfti undirbúning af hálfu þess, er það tæki að sér. Ég er ekki heldur viss um, að það sé nauðsynlegt, fyrst sá skilningur er kominn, að ríkinu beri að sjá fyrir samgöngubótum þarna.

Ég vil taka fram, að ferðir þessar eru ekki farnar stöku sinnum. Þær hafa verið svo áratugum skiptir og hafa verið bæði mjög áhættusamar og eigi minnst kostnaðarsamar.

Áætlunarferðir Djúpbátsins hafa verið um 200 á ári, og hafa viðkomustaðir verið þetta frá 12–18 í flestum ferðunum, og ferðin er oftast farin á einum degi. Það er ekki neitt smáræðis átak fyrir eitt hérað að halda uppi svona samgöngum.

Að sjálfsögðu má benda á, að ýmislegt í rekstri þessa félags hefur farið verr en skyldi, en þess ber að gæta, að við erfiðan fjárhag er að etja. Hér er mestmegnis um fjárframlög frá héraðsbúum sjálfum að ræða og lítið eitt frá ríkinu, aðallega til póstflutninga. Ég hef aldrei getað skilið, að hér væri aðeins um póstflutninga að ræða.

Sem betur fer hafa hv. þm. nú skilið, að hér er um þjóðbraut að ræða, alveg eins og þjóðvegi í öðrum meginhéruðum landsins.

Það er önnur ástæða fyrir því, að ég hef kvatt mér hljóðs, önnur en sú, að ég tel, að ríkinu beri að styrkja þetta. Ástæðan er sú, að geta má þess, að allir eru ekki á einu máli um, hvernig koma eigi fyrir félagsskap, er stendur í sambandi við ferðir Djúpbátsins. Reksturinn þarf að vera í höndum góðra manna. Margir hafa lagt hér fram mikið fé. Það skiptir tugum þúsunda. Sýslunefnd hefur þó haft aðalvöldin í þessu máli, og ég hygg, að bezt fari á því, að það haldist framvegis. Þeir, sem í henni sitja, vita bezt um þarfirnar og þekkja nauðsynina af gamalli reynslu og ættu að vera gætnastir í fjármálum.

Það hefur verið svo að undanförnu, að sýslun. hefur átt meiri hl. af stjórnendum fyrirtækisins, sem hefur rekið Djúpbátinn. Það hefur verið hlutafélag á seinni árum, en var venjulegur félagsskapur manna á fyrstu árunum. Ég sé, að í þessu frv., sem n. flytur, er gert ráð fyrir, að stofnað verði hlutafélag til þess að koma þessum væntanlega Djúpbát upp og til þess að stjórna honum. Það mætti vel vera, að þessi félagsskapur verði steyptur upp að einhverju leyti, en langheppilegast álít ég, að sýslufélagið sjálft hafi töglin og hagldirnar í aðalstjórninni.

Hv. frsm. las eitthvað upp úr grg. frá n., sem kosin var á héraðsfundi Norður-Ísafjarðarsýslu, um, að félagsskapur sá, sem nú hefur með þetta mál að gera, væri ekki þess megnugur að beitast fyrir þessu máli. Ég geri ráð fyrir, að þá sé það af því, að menn hafa ekki verið alls kostar ánægðir með farkostinn undanfarin ár, en hitt er víst, að félagsskapur, sem barizt hefur fyrir einhverju málefni og haldið því fljótandi um áratugi, er mikillar þakkar verður, þó að kannske sé hægt að finna að rekstrinum í einstökum atriðum. Það er athugamál, hvort eigi að kasta fyrir borð með óþökk þeim, sem eru brautryðjendur í málinu, og þess vegna vil ég ekki, að það sé gert af Alþingi að óathuguðu máli.

Ég spurðist fyrir um það fyrir stuttu út af þeim ummælum, sem ég hafði heyrt, um að félagsskapurinn væri á hausnum fjárhagslega, og fékk þau svör, að félagið væri skuldlaust og miklar líkur væru til, að það mundi geta lagt talsvert fé fram til þess nýja Djúpbáts. Ég tel því sjálfsagt að hafa a. m. k. gott samkomulag við þetta félag, sem nú starfar að því að halda uppi ferðum, og sjá, hvað nýtilegt er í starfi þess og hvað það getur af mörkum látið.

Ég hef verið þeirrar skoðunar, að þegar Djúpbáturinn kemur, ætti það fyrirtæki að fara af stað skuldlaust, og þess vegna væri ekki rétt að stofna hlutafélag, þar sem hluthafarnir teldu til skuldar og gert ráð fyrir eins og í þessu frv., að þeir mættu borga arð af fé sínu. Ég álít, að það eigi aldrei að borga arð af því fé, sem lagt verður í þennan bát, og kynni betur við, að ef héruðin leggja eitthvað af mörkum, hvort sem það er sýslan eða einstaklingar, að það fé verði lagt fram sem gjöf. Á sama hátt finnst mér, að það fé, sem ríkið seldi af hendi, ætti blátt áfram að vera framlag, sem ekki væri talið sem skuld hjá fyrirtækinu eða neins arðs krafizt af. Mér finnst, þó að ég vilji á engan hátt vantreysta samgmn. og því, hvernig hún tekur á málinu, að það sé ekki hliðstætt, ef ríkið ætlar að taka allt að 5% í arð af því fé, sem það leggur til til að bæta samgöngur við Ísafjarðardjúp, en leggur fram til sumra héraða 1–200 þús. kr. í vegi og borgar þar á ofan viðhald þeirra vega. (StgrSt: Það er ætlazt til, að þarna sé borgaður rekstrarstyrkur líka.) Já, það er ætlazt til þess, einmitt af því að þetta er póstflutningabátur um héraðið, eins og að undanförnu, en þessi styrkur hefur verið skoðaður fyrst og fremst sem greiðslá fyrir póstflutninga. Ég ætla þó ekki að fara út í neinn meting um það, hvor leiðin verður farin. Höfuðatriðið er, að þetta mál verði afgreitt á þann hátt, að ferðir um Djúpið verði greiðar og öruggar, en hitt er frekar aukaatriði, hvort ríkið lætur þetta framlag beint sem óendurkræft framlag eða sem hlutafé, sem fyrirtækið eigi að greiða arð af, ef það ber sig.

Þá þykir mér rétt að taka það fram, að stærð bátsins er, eftir því sem ég fæ bezt skilið og ég hef skilið þá menn, sem einna. bezt eiga að hafa vit á þessu, tæplega nógu mikil. Ég er alveg sannfærður um, að heppilegasta stærðin á þessum bát er kringum 70 smálestir. Það þarf líka að byggja hann með sérstöku tilliti til hafnarskilyrða, og það er eflaust hægt, því að á Ísafirði er skipasmíðastöð og vel lærðir skipasmiðir, sem þekkja öll skilyrði, og er sjálfsagt að byggja bátinn þar vestur frá. Kunnáttumenn segja mér, að enginn munur muni vera á rekstri 50 og 70 smálesta báts, en ef hann er hafður 70 smálestir, er gert ráð fyrir, að hann kosti 250–280 þús. kr. með því verðlagi, sem nú er, því að það sé ógætilegt að áætla smálestina undir 4 þús. kr. í svo fullkomnum bát sem þessi þyrfti að vera, og þá mundi ríkið verða að leggja fram 150–200 þús. kr. í bátinn, sem þyrfti þó ekki að greiðast allt í einu, heldur svo sem 50 þús. á ári í 3 ár. Þetta er atriði, sem mér finnst að geti orðið til skynsamlegrar og friðsamlegrar athugunar milli manna í þinginu, meðan þetta mál er að komast í gegn.

Ég sé svo ekki ástæðu til að taka fleira fram í sambandi við þetta mál. Það er í sjálfu sér mjög heppilegt, af því að sýslunefnd Norður-Ísafjarðarsýslu situr nú á fundi, en hún er sá aðili, sem mest hefur ráðin í þessu máli, að hafa samband við hana, eða a. m. k. oddvita hennar, og fá að heyra till. hennar um málið. Getur það orðið til leiðbeiningar. Sömuleiðis mundi sýslunefndin geta gefið einhverjar upplýsingar um það, hversu mikið sýslan og einstakir menn í sýslunni treysta sér til að fórna fjárhagslega til stofnunar bátsins.