21.04.1941
Neðri deild: 41. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í C-deild Alþingistíðinda. (3249)

111. mál, Ísafjarðardjúpsbátur

Frsm. (Vilmundur Jónsson) :

Ég vil þakka ágætar undirtektir undir þetta mál. Ég bjóst við þeim góðum, en þær hafa orðið enn betri en ég gerði ráð fyrir. Mér er síður en svo kappsmál, að málið sé leyst í því formi, sem lagt er til í frv. Kjósendur mínir í Norður-Ísafjarðarsýslu eiga frumkvæði að málinu, og þeir hafa orðið ásáttir um þetta form, en ekkert liggur fyrir um, að þeir gætu ekki eins vel eða betur sætt sig við annað. Þetta þarf ekki endilega að vera hlutafélag. Ekki væri það verra að fá skilorðslausan styrk til slíks báts, t. d. ¾ kostnaðar, og héraðsbúar síðan látnir sjálfráðir um tilhögun fyrirtækisins. Að sjálfsögðu mun ég ræða þessi efni við samgmn. þessarar hv. þd. og hv. efri deildar og þá m. a. kynna mér, hvort ekki mundi geta náðst samkomulag um að fara fram á ríflegri styrk. Um stærð bátsins er það að segja, að við miðuðum við tillögur n. heima í héraði, og er hér aðeins um lágmarksstærð að ræða.

Bátinn má hafa stærri, ef svo sýnist. Ég hygg, að enginn ágreiningur þyrfti um það að verða, ef æskilegt þætti, að sýslan ætti bátinn og sæi um rekstur hans. Og þótt hlutafélag væri, gæti sýslan átt hlut í því og þá samsvarandi hlutdeild í stjórn þess.

Nafn frv. er mér og ekkert aðalatriði. Þó að báturinn yrði aðallega fyrir Djúpið, hefði hann þýðingu fyrir allar samgöngur Vestfjarða. Vegur sá, sem hv. þm. Barð. leyfði sér sjálfur að kalla Vesturlandsveg, endar fullgerður við lendingarstað einhvers staðar í Nauteyrarhreppi. Ef hann á að koma að fullum notum, þarf að sjá fyrir tíðum og öruggum bátasamgöngum þaðan til Ísafjarðar, í sambandi við akveginn þaðan til Vestur-Ísafjarðarsýslu og skipaferðir á báða bóga.

Ég lýk svo þessum orðum mínum með þökk fyrir ágætar undirtektir og von um, að fyrir 2. umr. megi athuga málið og gera þær ráðstafanir til breyt., sem kann að þykja þurfa.