21.04.1941
Neðri deild: 41. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (3250)
111. mál, Ísafjarðardjúpsbátur
*Gísli Guðmundsson:
Herra forseti! Það er ánægjulegt, hve mikill áhugi virðist vera hér fyrir bættum samgöngum á sjó í Norður-Ísafjarðarsýslu. Ég vildi að það væri fyrirboði aukins áhuga á samgöngum á öðrum stöðum við líka aðstöðu. Hv. þm., sem talað hafa í þessu máli, munu brátt fá tækifæri til að sýna, hvort svo er, sem ég efa ekki.
Ég stóð annars upp til að fá að vita, hvort áætlun hefði verið gerð um það, hvað báturinn ætti að kosta. Ætlazt er til, að ríkissjóður leggi fram allt að ½ stofnkostnaðar, og það er ekki takmarkað við upphæð. Í 1. gr. er að vísu nefnt allt að 50 þús. kr. lán, sem félagið á að taka og leggja fram móti ríkistillaginu, og stærðin bundin við 45–55 smál. En ekkert er gefið í skyn um verð bátsins í heild eða hvað yfirleitt muni kosta að smíða slíka báta nú. Ég vildi spyrja hv. samgmn., hvaða upphæð áætlunin nemi.