13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (3272)

114. mál, ábúðarlög

Pétur Ottesen:

Ég mun ekki tala langt mál. Það, sem á milli ber, liggur hér ljóst fyrir öllum. Ég get aðeins getið þess, að í ábúðarl. eru ekki ákvæði um, að leigja skuli jarðir fyrir hundraðshluta af fasteignamatsverði, en í l. um erfðaábúð á ríkisjörðum hefur gilt alveg sérstaklega, að ríkisjarðir skuli leigðar fyrir 3% af fasteignamatsverði. Reynslan hefur nú sýnt. að ríkissjóður er mjög vanhaldinn af þessu. Sá maður, sem fer með þessi mál fyrir ríkisstjórnina, hefur tjáð mér, að engan veginn sé hægt fyrir ríkið að standa straum af kaupverði þeirra jarða, sem ríkið hefur verið að kaupa, nema með því móti, að tekin verði upp í fjárl. árlega allstór upphæð til þess að gefa með þessum jörðum.

Og það er nokkur bending um það, hver í raun og veru sé grundvöllurinn undir því að setja inn í ábúðarl. slík ákvæði sem þau, er um ræðir í þessu frv. Hv. þm. áleit, að þetta mundu nauðsynlegar ráðstafanir nú, vegna þess að ýmsir menn, sem ættu nú peninga, óskuðu eftir að ná í jarðeignir, af því að þeir teldu þær traustari eign heldur en peninga. Gagnvart þessu vil ég segja það, að ég lít svo á, að viðkomandi bændum í byggðum landsins, þar sem slíkt kann að eiga sér stað, eigi að vera að fullu borgið með löghelgaðri íhlutun úttektarmanna gagnvart þessum bröskurum, sem ætla að setja fé sitt í þessar jarðir án þess að nytja þær sjálfir, svo að þeim verði ekki kápan úr því klæðinu að taka eftir þær eftirgjald, sem mætti teljast hærra en hófleg leiga miðað við þann afrakstur, sem af nýtingu jarðanna flýtur. Ég álít, að óhætt sé að leggja þetta í hendur úttektarmanna, því að þeir menn eru eðlilega á verði fyrir því, að hér sé allrar hófsemi gætt. Að því leyti, sem síðasti ræðumaður minntist á húsaleigul., þá álít ég, að eins og sú n., sem á að ákveða húsaleigu og skera úr um þau mál fyrir leigjendur, hafi úttektarmenn úti um byggðir landsins hliðstæðum störfum að gegna fyrir bændur. Ég álít, að fyrir ábúanda á jörð sé jafnmikið öryggi í úttektarmönnum og fyrir leigjanda í kaupstað að húsaleigun., og sé því með þessu ákvæði vel fyrir hvorum tveggja séð.

Það getur vel verið, að það eftirgjald, sem greitt er með dún, á þeim jörðum, þar sem um slíka framleiðslu er að ræða, sé nú orðið hátt eftirgjald, þegar miðað er við það, hve fólksfrekt það er að hagnýta varplöndin og gera dúninn að góðri vöru. Þá kemur það og til greina, að dúntekja hefur ákaflega mikið gengið úr sér á undanförnum árum. En það hefur ekki verið tekið tillit til þess að lækka það dúnmagn, sem ganga á í eftirgjaldið, í samræmi við það, sem dúntekjan í heild hefur gengið saman. Það gæti komið til mála leiðrétting á því.

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, — úr þessu verður skorið við atkvgr.