23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (3299)

132. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé verðbréf og skuldabréfa

*Haraldur Guðmundsson:

Hv. 7. landsk. virðist telja á því mikil tormerki, að tilskildur skattur yrði greiddur af skuldabréfum einstakra manna, sem tryggð eru með veði í fasteign, eftir þessum l. Ég er honum ekki sammála um það. Hann veit, og það er á allra vitorði, að einmitt á skatttekjum, sem koma eiga með vöxtum af slíkum bréfum, eru ákaflega mikil vanhöld nú. Og það er að minni hyggju mjög ofmælt, að það megi í 100% tilfellum rekja slóðina til eigenda bréfanna, eins og hann tók fram. (GÞ: Næstum því ). Það er mjög fjarri því, að það sé í öllum tilfellum. Það eru mörg dæmi þess, að skuldari, sem veit, að hann kemur í mjög lágan skatt, telur alls ekki fram vaxtagreiðslur af sínum bréfum, ef sá, sem bréfin á, kæmist í háan skattstiga af því að hann hefur háar tekjur, og ef vaxtagreiðslan væri fram talin, kæmi sá, sem vextirnir eru greiddir, til með að þurfa að borga háan skatt af þeim. Þannig gæti sá mismunur á skattinum, sem þarna kemur fram, orðið beinn gróði, eftir því hver greiðir skattinn, sá, sem vextirnir eru greiddir, eða skatturinn er ekki dreginn frá skattskyldum tekjum þess, sem . greiðir hann, og greiðandi þannig borgar skattinn í bráðina. Skuldareigandi hefur svo ótal leiðir til að jafna þann halla í skattinum, sem vaxtagreiðandi tekur á sig í bili.

Þá verð ég að segja það, að ég held, að hv. 7. landsk. ger í allt of mikið úr þeirri áhættu, sem því er samfara að láta vaxtagreiðendur skila skattinum til innheimtumanns, samkv. 7. gr. frv. Ég hygg, að ekki sé meiri hætta á vanskilum á skatti í þessum efnum heldur en vanskilum á skatti yfirleitt. Kvittun á að gefa í tveimur eintökum. Ef sá, sem tekur á móti vöxtum, er hræddur um, að efi sé á því, að skuldari greiði þennan ¼ hluta vaxtanna, sem hann á að skila til innheimtumanns, þá er honum auðvelt að gera viðvart viðkomandi skattheimtumanni og sjá um, að hann gangi eftir því, sem þessi skuldari á að greiða í vaxtaskatt.

Ég vil leyfa mér að henda á, að þetta frv. er samið af meiri hl. milliþn. í skatta- og tollamálum, sem hefur látið fram fara gaumgæfilega rannsókn á þessum efnum, bæði um það, hve mikið fjármagn um er að ræða, sem ekki kemur fram í framtali til skatts og því ekki hefur verið greiddur tekjuskattur af, og líka á því, hvernig hentaði bezt að hafa fyrirkomulag á innheimtu skattsins af þessum tekjum. Og í þessari milliþn. á sæti skattstjórinn í Reykjavík, sem sjálfsagt er þessum málum kunnugastur. Það er fjarri mér að gera nokkuð lítið úr kunnugleika hv. 7. landsk. um þessi efni, en þó verð ég að efast um, að sá hv. þm. standi nokkuð framar að kunnugleika og þekkingu á þessum efnum heldur en skattstjórinn í Reykjavík, sem að miklu leyti hefur samið þetta frv., sem hér liggur fyrir. Ég fæ því ekki séð, að þessi andmæli, sem hv. 7. landsk. hreyfir hér gegn frv., gefi tilefni til þess að vísa frv. frá eða fella það. Það væri þá í hæsta lagi, að rök hans gæfu tilefni til, að sett væru skarpari ákvæði um innheimtu vaxtaskattsins, t. d. að veðréttur fylgdi vöxtunum þangað til þeir væru komnir til rétts aðila og þá sá hluti þeirra, sem á að ganga í skatt, til viðkomandi skattheimtumanns. Ég sé ekki, að það raskaði neinu í frv., þó að slíkt ákvæði væri sett inn í það, ef ástæða þykir til.

Hv. 7. landsk. viðurkenndi auk þess, að hann væri því fylgjandi, að vaxtaskattur væri innheimtur á þennan hátt, sem frv. gerir ráð fyrir, að því er snertir vexti af flokkabréfum, ríkisskuldabréfum og öðrum handhafavaxtabréfum. Mér þykir vænt um, að hann fellst á þetta með mér. En þá fæ ég ekki séð, að eðlismunur sé á þeirri vaxtaskattsinnheimtu og innheimtu vaxtaskatts af þeim skuldabréfum, sem hann gerði að umræðuefni.

Ég skal fúslega ganga til móts við hv. 7. landsk., ef hann kemur með brtt. um það að setja skarpar í ákvæði um innheimtu vaxtaskattsins, þannig að veð standi fyrir honum þangað til hann er að fullu greiddur.