07.04.1941
Efri deild: 32. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (3332)
29. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
Flm. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti! Þetta frv. fjallar um það að framlengja ákvæði til bráðabirgða, sem eru l. nr. 27 13. jan. 1938, um vátryggingarfélög fyrir vélbáta. En þessi bráðabirgðaákvæði heimila félögum, sem náð höfðu ákveðinni aldurshæð, þegar lögin voru sett. að starfa sjálfstætt áfram í 3 ár. En með því að sá tími er nú nærri útrunninn, þótti réttmætt að fara fram á, að þessi ákvæði yrðu framlengd um næstu 3 ár.
Sjútvn. Ed. hefur léð þessu frv. einróma samþykki og vill vonast til, að hv. Ed. geti fallizt á þessa framlengingu.