15.04.1941
Efri deild: 35. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (3356)

87. mál, verðlagsuppbót á greiðslur til landbúnaðar

*Flm. (Brynjólfur Bjarnason):

Ég geri ráð fyrir, að ekki sé ágreiningur um það, að greiða beri verðlagsuppbót á styrki til landbúnaðarins, svo að ekki þurfi að rökstyðja það nánar en gert er í grg. Ég sé, að í frv. um breytingu á búfjárræktarl., sem hér liggur fyrir, er ákveðin verðlagsuppbót á greiðslur samkvæmt þeim. En um leið og ég flyt frv. um breytingu á jarðræktarl., þykir mér rétt að bera fram till. þessa um verðlagsuppbót á jarðræktar styrkinn. Þessi lagaákvæði um verðlagsuppbótina tel ég eiga heima í sérstökum lagabálki. Það kann að vera, að verðlagsuppbótin verði að vera nokkuð misjöfn, eftir því, um hvaða greiðslur er að ræða, og held ég, að heppilegast sé, að það sé á valdi Búnaðarfélagsins að ákveða það í hvert sinn.

Legg ég svo til, að málinu verði vísað til hv. landbn.