06.05.1941
Efri deild: 53. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (3363)

88. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Eins og fyrirsögn frv. ber með sér, þá fer þetta frv. fram á, að ríkisstj. sé gefin heimild til að selja Siglufjarðarkaupstað kirkjujörðina Hvanneyri á Siglufirði. Allshn. hefur athugað þetta frv. og grg. þess, þar sem bent er á nauðsyn Siglufjarðarkaupstaðar á að fá eignarrétt á þessari jörð. Enn fremur hefur n. sent málið til umsagnar ríkisstj., og hefur hún ekkert við það að athuga, að þessi heimild sé gefin, og leggur n. því til, að frv. verði samþ.

Hins vegar sér n. ekki ástæðu til að láta 2. gr. standa í frv., þar sem svo er fyrir mælt, að greiðsla kaupverðs skuli fara fram samkvæmt ákvæðum 13. gr. 1. mgr. l. nr. 50 frá 16. nóv. 1907, um sölu kirkjujarða, þar sem búið er að nema þessi l. úr gildi. N. lítur þannig á, að þar sem ríkisstj. að sjálfsögðu hefur óskertan ákvörðunarrétt um söluverð, þá sé einnig rétt, að hún ákveði söluskilmála. Ég skal taka fram, að með þessu er n. þó ekki að láta í ljós neina vanþóknun sína á því, að söluskilmálar verði á sama hátt og var í l. um sölu kirkjujarða, þvert á móti getur n. fyrir sitt leyti fallizt á það; en henni fannst óviðeigandi, að vitnað væri til l., sem numin hafa verið úr gildi, og í þessu tilfelli er það líka alveg ástæðulaust.

Að öðru leyti hefur n. ekkert við frv. að athuga og leggur til, að það verði samþ.