20.05.1941
Neðri deild: 63. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í C-deild Alþingistíðinda. (3380)

88. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði

*Bergur Jónsson:

Ég vil taka það fram, að þegar mál þetta lá fyrir allshn., var eingöngu um að ræða sölu á kirkjujörðinni Hvanneyri við Siglufjörð. Ég vil því taka undir þá ósk hv. þm. Borgf., að málið verði tekið út af dagskrá nú, svo að n. geti athugað hina nýju brtt.