16.04.1941
Efri deild: 36. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (3389)
93. mál, hafnarlög fyrir Neskaupstað
Magnús Gíslason:
Herra forseti! Með því að fyrri flm. þessa frv., hv. 2. þm. S.-M., er ekki viðstaddur, þá vil ég fylgja frv. úr hlaði með nokkrum orðum.
Frv. þetta er flutt eftir beiðni bæjarstjórnar Neskaupstaðar og samið af henni. Eins og kunnugt er, þá eru hafnir góðar á Austfjörðum, svo lítið þarf þar að bæta. Þær framkvæmdir, sem gerðar hafa verið þar austur frá, bæði uppfyllingar og bryggjur, hafa notið mjög lítils styrks frá því opinbera. Mestallt hefur verið byggt af einstaklingum. Þó hafa bæjarfélögin, t. d. á Seyðisfirði og Norðfirði, eignazt slík mannvirki.
Enda þótt hafnir séu fremur góðar, þá eru hafnarskilyrðin á Norðfirði samt engan veginn sem bezt, og stafar það af því, að fjörðurinn er stuttur, — fremur vík en fjörður —, þannig að sjóar, er ganga inn fjörðinn, gera skipa- og bátaleguna ótrygga. Eyri gengur út í fjörðinn, sem heitir Neseyri, og þessi eyri skýlir höfninni fyrir hafsjóum og gerir það að verkum, að höfnin er þolanleg. En fyrir nokkrum árum tóku menn að veita því eftirtekt, að sjórinn braut framan af nesoddanum, svo að það leit út fyrir, að alvarlegar skemmdir mundu af hljótast. Þá var tekið það ráð að byggja varnargarð á eyrinni, svo að hann hindraði sjóinn í skemmdarverki sínu. Þá var veitt nokkurt fé úr ríkissjóði til þeirra framkvæmda. Nú er þessi varnargarður víða allmikið skemmdur, svo að allt bendir til, að hann þurfi að endurbyggja þá og þegar.
Ætlazt er til með frv., ef það nær fram að ganga, að sett verði l. um framkvæmdir til umbóta á höfninni í Neskaupstað, bæði endurbyggingu hafnargarðsins og einnig byggingu nýrrar hafskipabryggju, sem kæmi í stað hinna mörgu smábryggja, er einstaklingar hafa komið upp með ærnum tilkostnaði og þurfa mikið viðhald vegna sjóa, er inn á höfnina ganga, svo bátar mölva þær oft og tíðum.
Hafnarsjóður á nú eina bryggju, sem var byggð fyrir tæpum 20 árum. Þessi bryggja er nú mjög úr sér gengin. Ætlazt er því til, að nú þegar verði hafizt handa með byggingu stærri og traustari bryggju. Vitamálastjóri hefur látið í té áætlun um byggingu trébryggju, og er gert ráð fyrir, að hún kosti 135 þús. krónur.
Nú telur bæjarstjórn Neskaupstaðar ekki hyggilegt, að byggð verði trébryggja, heldur er það einróma álit hennar, að bryggjan verði að vera úr steini, og samkv. upplýsingum frá vitamálastjóra má ætla, að slík bryggja verði 2–3 sinnum dýrari en trébryggja, sem samkv. áætlun þeirri, er áður hefur verið getið, ætti að kosta 135 þús. kr. Því ætti steinbryggja að kosta allt að 350 þús. kr. Verður að álíta kleift fyrir hafnarsjóð, er hefur allt að 25 þús. kr. árlegar tekjur, að byggja steinbryggju. Í frv. er gert ráð fyrir, að 2/5 kostnaðarins verði veittir úr ríkissjóði og 3/5 úr hafnarsjóði Neskaupstaðar. Auk þess er gert ráð fyrir, að ríkisstj. fái heimild til að ábyrgjast 400–450 þús. kr. lán, er hafnarsjóður Neskaupstaðar þyrfti að taka. Þessar tölur eru gerðar af handahófi og munu vera heldur rúmar, því að ekki mun vera gert ráð fyrir alveg svona. miklum kostnaði.
Um form frv. get ég tekið það fram, að það er sniðið eftir hafnarlögum, sem sett hafa verið á seinni árum, svo að ég geri ekki ráð fyrir neinum verulegum breyt. á frv. Spurningin er, hvort það er álit Alþ. eða hv. d., að hér sé um brýna nauðsyn að ræða, og hvort rétt sé, að ríkissjóður styrki þessar framkvæmdir eins og að framan greinir.
Á Norðfirði eru miklar siglingar og þar kemur fjöldi skipa árlega. Þar er mest útgerð á öllum Austfjörðum. Um 30 skip eru skrásett þar, sum allstór og eitt yfir 100 tonn. Flest eru þau frá 12 til 60 eða 70 tonn. Auk þess eru þar opnir vélbátar og árabátar. Af þessu má ráða, að tekjur hafnarsjóðs geta orðið miklar, einkum ef þessar umbætur yrðu gerðar.
Ég ætla svo ekki að orðlengja um þetta frekar, en vænti góðra undirtekta hjá hv. deild. — Svo vil ég leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn.