14.05.1941
Neðri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (3478)
125. mál, vegavinna
*Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Vegna þessarar till., sem hér er fram komin, þykir mér rétt að upplýsa, að langt er síðan ríkisstj. tók ákvörðun um að reyna að haga vegavinnu og annarri opinberri vinnu á þann hátt, að fólkið haldist sem mest heima í sveitunum, meðan á heyönnum stendur, — einnig að hvetja menn úr kaupstöðunum til að gefa sig að heyskaparvinnu með því að gefa þeim forgöngu að þeirri vinnu, sem ríkisstj. réði yfir á haustin. Í fullu samræmi við það hefur fyrir löngu verið ákveðið að reyna að hafa framkvæmdir í sveitunum sem allra minnstar eða helzt engar meðan á slætti stendur, í því skyni að draga ekki vinnuaflið frá landbúnaðinum. Ríkisstj. er því samþykk þessari till., eins og hún liggur fyrir, en telur hennar ef til vill ekki þörf. Hvort sem till. verður samþ. eða ekki, mun ríkisstj. gera þær sömu ráðstafanir í þessu máli og skoðar till. aðeins sem meðmæli Alþ., ef hún verður samþ., sem sjálfsagt er. Kemur ekki til greina annað en allir séu sammála um, að nauðsyn beri til þess að bæta úr hinni auknu þörf landbúnaðarins á vinnuafli. Þess vegna getur ekki komið til mála, að Alþ. leggist á móti þeirri hugsun, sem felst í till.