15.05.1941
Efri deild: 61. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (3486)
144. mál, uppgötvanir
*Magnús Jónsson:
Ég ætla ekki að fara að vekja umr. um þetta mál hér, því að mér skilst, að það mál, sem sérstaklega er gert að umræðuefni í grg., sé nú úr sögunni eftir þetta langa stríð, því að mér skilst, að húsameistari hafi fengið einkaleyfi á þessari uppgötvun.
En ég vil að gefnu því tilefni segja, að mér finnst, þó að vel geti verið, að hugvitsmenn eigi að fá verndun fyrir uppgötvanir sínar, að stj. ætti líka að hafa nokkra gát á því, hvaða áhrif það kann að hafa fyrir viðkomandi starfsgrein, því að það er alkunnugt víða, að uppgötvanir, sem eru ákaflega nauðsynlegar fyrir almenning, fara í einkaleyfi og verða fyrir það miklu dýrari en ef þær hefðu verið frjálsar. Mér finnst reglulega leiðinlegt, — ég vil segja næstum sorglegt, — ef gerð er uppgötvun um íslenzkt efni til að húða utan hús og það yrði svo ekki að sama gagni, eftir að hún væri komin í einkaleyfi, því að þá er hægt að neita notkun þessa efnis nema, fyrir svo og svo hátt gjald. Ég er ekki kunnugur þessu máli nema rétt af afspurn, en mér virtist lengi vera þannig, að allir notuðu þetta efni. Það var meira að segja deilt um þetta, og ýmsir þóttust hafa fundið þetta upp. Ég frétti það svo seint og síðar, að það hefði verið húsameistari, sem hefði fundið upp að mylja niður íslenzkar steintegundir og nota til að húða hús utan, en aðrir segja mér, að þeir hafi fundið þetta upp. Mér er ekki kunnugt um annað en að þetta var notað af mörgum. Menn hafa gengið í þessar steintegundir og mulið þær niður með mismunandi frumstæðum verkfærum, og, það er ákaflega gott, að þetta skuli hafa fundizt.
Ég er sammála hv. flm. till., að það er leiðinlegt, ef hugvitsmenn geta ekki fengið uppgötvanir sínar viðurkenndar, en það getur líka verið, að einhverjar uppgötvanir, sem eru nauðsynlegar fyrir almenning, verði minna nothæfur, ef veitt er einkaleyfi á þeim. Ég vona, að þetta verði ekki til þess, að það verði allt of dýrt að húða hús á þennan hátt. Ég ber mikið traust til húsameistara, en af því að það er ekki það mál, sem hér er um að ræða, þá vil ég vekja athygli á því, að þetta getur verið hættulegt. Það er svo með margt, sem hefur farið í einkaleyfi, að svo að segja allur framleiðslukostnaðurinn er einkaleyfisgjald. Mér er sagt, að fyrir nokkuð löngu, þegar fundin var upp Gilette-rakvél, hafi hún kostað eitt sterlingspund, en hefði verið hægt að framleiða hana fyrir einn shilling. Þetta var svo gott verkfæri, að menn vildu kaupa slíka rakvél, þó að hún kostaði eitt pund. Svo þegar einkaleyfistíminn var útrunninn, fá menn þessa rakvél fyrir örlítið verð. Mér þykir leitt, að það, sem er mjög þarft, yrði kannske minna notað vegna sérleyfa.