16.05.1941
Sameinað þing: 18. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (3521)
154. mál, sjálfstæðismálið
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti! Við þingmenn Sósíalistafl. höfum greitt atkvæði móti því, að afbrigði yrðu leyfð fyrir þessum till. til þál., en í því felst þó ekki andstaða móti málinu, heldur gegn þeirri óheyrilegu aðferð, sem notuð hefur verið við meðferð málsins. Mál þetta, sem hér liggur fyrir hv. Alþ., hefur gengið undir mörgum mjög hátíðlegum nöfnum. Það hefur verið kallað mál málanna, sjálfstæðismál, frelsismál o. fl. Ráðamenn stjórnarflokkanna hafa ekki þreytzt á að prédika fyrir þjóðinni, að þetta sé heilagasta mál, sem Alþ. hefur haft með höndum um langt skeið. — Maður skyldi þá ætla, að hv. þingmönnum gefist kostur á að sjá tillögur ríkisstj. um slíkt. mál, gefinn kostur á að ræða það frá öllum hliðum, hugsa það, svo menn gætu komið með brtt. því viðvíkjandi. — Og hið allra minnsta, sem hægt var að búast við, var, að meðferð málsins færi eftir þingsköpum. En hvað skeður? Það er pukrazt með málið eins og mannsmorð. — Fundur í Sþ. er boðaður með litlum fyrirvara, og ekki er gefinn kostur á að vita, hvað verður á dagskrá, — því síður að maður hafi fengið að kynna sér efni þessa máls. Svo á að keyra allt í gegn með afbrigðum, án þess að tími vinnist til að átta sig. Þegar slíkar aðfarir hafa verið notaðar áður, þá hafa þær þó verið afsakaðar, en hér er engin tilraun gerð í þá átt að rökstyðja þessa óvenjulegu aðferð.
Hæstv. ríkisstj. hefur nú tekið upp þann sið að koma á lokuðum þingmannafundum. Á þessum fundum, sem eru kallaðir fyrir stuðningsmenn stj., þar hafa einnig verið hv. bændaflþm. og hv. 3. þm. Reykv., og þetta eru kallaðir stuðningsmannafundir stjórnarinnar. Eru allir þessir hv. þm. stuðningsmenn stj.? Það væri æskilegt, ef hv. þm. vildu svara því. En stjórnarandstæðingar voru útilokaðir. — Svo eru þar rædd ýmis vandamál. — Með þessu er þingræðið afnumið. Þarna eru málin að heita má útkljáð, og svo er boðað til formlegs fundar, svo stjórnarandstæðingar hafa engan tíma til að hugsa sig um. — Er þetta þingræði? Dirfist nokkur hv. þm. að kalla þetta þingræði? Ef svo er, þá er þingræðið ekkert annað en skrípaleikur. Ríkisstj. getur gefið út „lög“ (innan gæsalappa) og kallað miðstjórnir flokkanna saman til skrafs og ráðagerða, en þegar slíkri aðferð er beitt sem þessari, er ég hef hér lýst að framan, og það í máli, sem stjfl. telja heilagast allra mála, þá gengur jafnvel fram af mér, enda þótt ég hafi sannarlega aldrei vænzt mikils af þessum háu herrum.
Hæstv. forsrh. sagði, að það væri mikils vert, að þetta væri einróma þingvilji. — Það lítur út fyrir, að honum sé umhugað um það. Að nokkur maður skuli geta látið annað eins út úr sér og þvílíka vitleysu. — Ég mótmæli slíkum aðförum, og ég mótmæli þeim kröftuglega í nafni Sósíalistafl. og mér er óhætt að segja í nafni mikils meiri hluta þjóðarinnar.
Í gærkvöldi var þessi hv. samkunda hér, sem ennþá er Alþingi Íslendinga, að samþykkja að þingræðið fengi að sigla sinn sjó. — Á slíkri framkomu sem þessari má sjá, að hæstv. ríkisstj. telur sig nú óháða dómi kjósenda víðsvegar um landið. Það á ekki að láta standa á að venja menn við einræðið, áður en einræðið verður formlega stofnað 29. júní.
Því miður er rangnefni að kalla þetta sjálfstæðismál. Samþykkt þessarar till. til þál. hefur ekki áhrif á sjálfstæði Íslands. Við Íslendingar verðum jafnósjálfstæð þjóð eftir sem áður, því við erum hernumin af styrjaldaraðila. Íslenzka þjóðin ræður jafnlitlu eftir sem áður, — því miður. Hér á hv. Alþingi var samþykkt í gærkvöldi að setja einræði nokkurra valdránsmanna á stofn um óákveðinn tíma. Í kvöld mun hið sama hv. Alþ. lýsa yfir stofnun lýðveldis. Þetta mun mörgum þykja nokkuð hjákátlegt, en allt er þetta sorgar saga, — sorgarsaga þjóðar, sem verður um stund að lúta innlendum og erlendum hnefarétti.
Eitt dæmið skeði í kvöld, annað en þessi meðferð á málinu. Forvígismenn stjórnarflokkanna fóru í útvarpið og héldu þar áróðursræður. Einn þeirra, hæstv. atvmrh., réðst á Sósíalistafl. og afflutti málstað hans, en flokknum er ekki gefið tækifæri til að svara til saka. Honum er neitað um þann rétt, sem honum ber samkv. þingsköpum Alþingis til þess að túlka mál sitt í útvarpinu, en svo eru þessir herrar að gráta hræsnistárum yfir því, að Sósíalistafl. var sviptur ritfrelsi. Er hægt að taka svona menn alvarlega? — Eða vilja þeir gefa flokknum tækifæri til að svara fyrir sig í útvarpinu? Svari þeir ekki þessari spurningu, þá er ekki að spyrja um dóm þjóðarinnar.
Því miður kemur þessi till. ekki til að ákveða neitt um framtíð þjóðarinnar. Allt aðrir hlutir munu ráða að stríðinu loknu, því sigri annarhvor þessara heimsveldasinnuðu ræningja, sem nú berjast um yfirráðin, þá verður íslenzka þjóðin ekki frjáls. — Eina vonin er sigur fólksins í þessum löndum yfir hinu stríðsbrjálaða auðvaldi, sigur sósíalismans.
Eina gildið, sem þessi till. hefur, er réttarleg eðlis. — Það er ekki lítils virði, að rétt leið sé farin í þessum efnum, og að mínum dómi er hún rétt. Þess vegna munum við þm. Sósíalistafl. greiða atkv. með tillögunum á þskj. 547 og 549. — Það, sem veltur á, er, að samþykktir Alþ. séu þess eðlis, að Ísland afsali sér engum rétti, heldur haldi fast á öllum sínum formlega rétti, og ég tel þessum skilyrðum fullnægt hérna í þessum till. til þál.
Aftur á móti munum við greiða atkv. gegn brtt. bv. 3. þm. Reykv., því þó að við teljum okkur hafa rétt til að slíta sambandinu að fullu við Dani, þá mun það verða véfengt af öðrum, og þess vegna er engin nauðsyn að gera slíka samþykkt, því það breytir engu um réttarstöðu Íslands í nútíð eða framtíð.