16.05.1941
Sameinað þing: 18. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (3524)
154. mál, sjálfstæðismálið
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég lýsi ánægju minni yfir því, að hv. þm. V.-Sk., sem ég held, að sé einn af ákveðnustu þm. í sjálfstæðismálum, hefur lýst yfir því, að svo sé frá þessum till. gengið, að hann geti greitt þeim atkv. með glöðu geði. Þannig hygg ég líka, að till. séu, og munu hv. þm. komast að þeirri niðurstöðu, ef þeir athuga þær nánar.
Ég ætla ekki að rekja ræður þær, sem hér hafa verið haldnar, en hér hafa komið fram mótmæli frá hv. 1. landsk. gegn því, hvernig farið hefur verið með málið á þingi. Hann sagði, að till. hefðu ekki verið lagðar fram nógu snemma og ekki verið ræddar við þm. Vegna þeirra, sem þessar umr. heyra, má taka það fram, að sum hin stærstu og vandasömustu mál hafa fyrst og fremst verið rædd í þingflokkunum, og hefur svo verið um áratuga skeið. Hv. þm. ræddi um fundahöld þingflokkanna. Ég get í því sambandi getið þess, að flestir hv. þm. óska ekki eftir því að eiga viðræður við suma hv. þm. um utanríkismál, af eðlilegum ástæðum. Nánar svara ég ekki þessu, og er þetta svar aðeins innt af hendi af þeim ástæðum, sem ég greindi frá.
Viðvíkjandi brtt. hv. 3. þm. Reykv. vil ég taka það fram, að það er mitt álit, og hygg ég, að ég mæli þar fyrir munn allrar stj., að varhugavert sé að koma með brtt. við þær till., sem hér liggja fyrir, vegna þess að benda má á líkur fyrir því, að það raski verulega samhengi þeirra. Það má deila um það, hvað sé að ganga hæfilega langt í þessum málum, en ég vil benda á það, að ef því yrði slegið föstu, með því að samþ. brtt. á þskj. 553, að sambandinu við Danmörku skyldi að fullu slitið, þá leiddi af þeirri samþykkt, að ekki væri rökrétt að kjósa ríkisstjóra samkvæmt hinni till. með þeirri aðferð, sem ætlazt er til, að höfð sé við þá kosningu, og jafnframt kallar þetta á það, að fengin sé viðurkenning annarra ríkja á því, að sambandsslit hafi orðið í .þriðja lagi verður að teljast ókleift, að slík aðferð sé viðhöfð, án þess að við göngum formlega frá okkar málum um leið. Við höfum ekki viljað ganga lengra en það, að við þyrftum ekki, vegna þess ástands, sem ríkjandi er, að ganga frá formlegum sambandsslitum og stjórnarskrá ríkisins.
Það hefur áður verið upplýst í þessum umr., að þó að ýmsum þyki undirbúningur málanna ekki hafa verið rækilegur, hafa þau þó verið ýtarlega rædd við þingflokkana, og stendur hér á bak við nokkurn veginn samhugur alls þingsins. Því hefur verið haldið fram við þessar umr., að þetta mál hafi ekki verið nægilega undirbúið og að það hafi verið allt of lítið rætt. Um slíkt má deila endalaust. Vel getur verið, að það sé einn af ágöllum mínum, að ég tala sennilega einna minnst af þeim hv. þm., sem sitja á Alþ., og álít, að undirbúningur mála, svipaður þeim, sem þetta mál hefur hlotið, sé ekki óeðlilegur, regar um vandasöm mál er að ræða. Í Framsfl. hefur málið verið mikið rætt, og formaður Sjálfstfl. hefur skrifað grein um málið, þar sem hann taldi nokkurn veginn vissu fyrir því, að þessi lausn væri einróma vilji hans flokks. Í Alþfl. hefur málið einnig verið mikið rætt og samþykktir gerðar um það. Eftir að þessar umr. höfðu farið fram, meðal annars í miðstj. Framsfl., sem hafði flokksþingið sér við hlið, tók ríkisstj. að undirbúa þessar till., sem voru svo jafnóðum ræddar við þm. Það er rétt, að frá hv. þm. V.-Sk. kom till. til ríkisstj. síðastliðinn vetur um það, að málið yrði þá undirbúið og kosin til þess n. Var látinn fram fara undirbúningur og samin stjórnarskrá til að hafa til taks, ef svo færi, að Alþ. gengi frá sambandsslitum við Dani. Var líka undirbúin bók til leiðbeiningar við utanríkisstarfsemina. En um sjálft málið kom það fram, að ekki var hægt að ráða því til lykta nema í samráði við hv. þm.
Ég hef áður borið þá spurningu fram fyrir hv. þm., hvort þeir hefðu óskað þess, að stj. hefði undirbúið málið án þess að leita álits þeirra, og hefur enginn svarað því játandi. Enda er það viðurkennt af hv. þm. V.-Sk., að tímarnir séu svo breytilegir, að málið sé stöðugt að upplýsast, einnig nú, meðan við sitjum á þingi. Og það hefur líka verið viðurkennt, að heppilegt var, að málið kom ekki fram fyrr en á síðari hluta þings. Ef ganga hefði átt frá sambandsslitum og stjórnlagaskipun ríkisins, og ef Alþ. hefði fallizt á þetta snemma á þessu þingi, þá hefði það komið illa heim við það, sem er yfirlýst skoðun Alþ. nú, að ekki sé hægt að ganga til kosninga, því að þá hefði orðið að kjósa nýtt þing og samþ. stjórnarskrána þar. En það liggur fyrir skýr yfirlýsing frá Alþ. í gær um það, að sú leið geti ekki talizt heppileg. Vissulega hefði sú leið jafnframt valdið átökum og umróti í sambandi við þá viðurkenningu, sem við hefðum þurft að fá út á við fyrir okkar gerðum. Ég veit, að Alþ. hefur aldrei verið þeirrar skoðunar, að því væri bætandi ofan á kosningar, sem við álítum ófærar nú.
Í þessum till. er beinlínis sagt það, sem ég tel skipta meginmáli, að Ísland tryggi sér nú allan þann rétt, sem það hefur þegar. Þó að sú brtt., sem hv. 3. þm. Reykv. ber hér fram, væri samþ., en ég hef bent á rök fyrir því, hvers vegna á ekki að gera, það, þá kæmumst við ekki feti lengra í sjálfstæðismálinu heldur en við komumst með þeim till., sem hér liggja fyrir, vegna þess að frá formlegum sambandsslitum og endanlegri stjórnskipun yrði gengið síðar, en það mundi þá jafnframt valda okkur þeim vanda, sem ég hef bent á, þó að ég hafi ekki minnzt á það, að ef slík yfirlýsing lægi fyrir, þá væru jafnframt þeir Íslendingar, sem dvelja í Danmörku og hafa þar rétt samkvæmt þeim leifum, sem eftir eru af sambandsl., um leið búnir að missa þann rétt. En okkur er ekki hægt að flytja þá heim nú. Þetta mundi verða ein af afleiðingunum af því að samþ. þessar brtt.
Það sem gert er í þessum till., er það, að fraratíðarstefnan er algerlega og skýrt mörkuð og því er slegið föstu, að við höfum í framkvæmdinni tekið að okkur meðferð allra okkar mála og orðið að taka hana og höfum þess vegna fullan rétt til þess að taka þau á formlegan hátt í okkar hendur, þegar okkur þóknast. Hitt er aftur á móti ekki rétt, sem hér hefur fram komið, að því sé algerlega slegið föstu, hvaða leið verður farin í málinu, því að ef menn vilja athuga till. gaumgæfilega, geta hv. þm. séð það, að það á ekki að fresta því lengur en til styrjaldarloka að ganga frá formlegum sambandsslitum og endanlegri stjórnskipun ríkisins. En ef styrjaldarlok verða eftir 1943, þá ráðum við því, hvort við slítum sambandinu með því að upphefja samningana á grundvelli réttar þess, sem vanefndir Dana veita, eða samkv. sambandslagasáttmálanum, því að þá eru samningarnir jafnt fallnir úr gildi samkv. sáttmálanum og þarf ekki að taka til vanefndaréttarins. En það er einmitt í upphafi 2, málsliðs þessarar ályktunar tekið fram, að af Íslands hálfu verði ekki um að ræða endurnýjun á sambandslagasáttmálanum. Og í þeirri yfirlýsingu felst það, að við þurfum ekki að óska eftir endurskoðun á sambandslagasáttmálanum, því að þessi yfirlýsing er ekki einasta um það, að sáttmálinn verði ekki endurnýjaður, heldur einnig um það, sem meira er, að hann falli sjálfkrafa úr gildi.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða málið frekar, nema sérstakt tilefni gefist til.