16.05.1941
Sameinað þing: 18. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (3528)
154. mál, sjálfstæðismálið
Forseti (HG) :
Út af þeim ummælum, sem fallið hafa hjá ýmsum hv. þm., um að boðun þessa fundar hafi verið ábótavant, vil ég taka það fram, að mér var tjáð af þingflokkunum, að þingfundur um þetta mál mundi verða haldinn í kvöld. Forsetar beggja d. tilkynntu á þingfundum í dag, að fundurinn mundi verða í kvöld. Dagskrá var útbýtt fyrir fundinn. En þáltill. var ekki útbýtt fyrr en á fundinum.