21.05.1941
Neðri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (3558)
152. mál, kirkjubyggingar í Skálholti og á Þingvöllum
*Flm. (Jörundur Brynjólfsson) :
Ég hef leyft mér, ásamt tveim hv. þm., að flytja þessa till. til þál. um endurbyggingu Skálholtskirkju og Þingvallakirkju. Ég get að mestu leyti vísað til grg. fyrir till. Þar er drepið á höfuðatriði til stuðnings málinu, og þar er einnig að því vikið, hver vansæmd það er fyrir þjóðina að láta þessar kirkjur enn um langt skeið vera í svo hörmulegu ástandi sem þær nú eru. Það orkar ekki tvímælis, að þessir tveir staðir eru langsamlega frægustu sögustaðir þjóðarinnar, og hvað kristna kirkju áhrærir, eru þeir líka í því tilliti frægustu staðir landsins, Þingvallakirkja vegna alþingishaldsins og þó sérstaklega vegna þess, að kristnitakan fór þar fram, sá sérstæðasti atburður í sögu kristninnar, þótt leitað væri um veröld alla. — Í Skálholti settist að hinn fyrsti íslenzki biskup, og var staðurinn gefinn kirkjunni til þess að vera biskupssetur.
Biskuparnir í Skálholti voru margir hinir merkustu menn. Í þeirra tíð fór þar og fram skólahald, og sóttu þangað margir nám, bæði í þágu kirkjunnar og til þess að afla sér almennrar þekkingar, og urðu margir þeirra mjög nýtir menn og merkir, er höfðu mikil áhrif á samtíð sína og enda um margar aldir. Og sá ljómi, sem stafaði af kennimönnunum í Skálholti, barst norður í land. Það var Jón biskup helgi Ögmundsson, fyrstur biskup á Hólum, sem gerði Hólastað frægan, — hygg ég það ekki ofmælt, að hann hafi verið allra biskupa frægastur á Hólastóli, og sátu hann þó margir nýtir menn. Um Gissur biskup Ísleifsson, sem tók við biskupsdómi af föður sínum, hefur það verið sagt, að hann hefði bæri verði konungur og biskup þessa lands á sinni tíð. Hann kom fram svo einstæðri löggjöf, að ekki átti sinn líka, og hafa til skamms tíma verið í gildi nokkrir þættir hennar. Því miður varð Alþingi það ár að afnema hana með öllu fyrir rúmum tuttugu árum, í stað þess að færa hana í það horf, er hæfði samkv. breyttum háttum. Ég á hér við tíundarlöggjöfina.
Brynjólfur biskup Sveinsson lét reisa kirkju í Skálholti, sem var langstærsta og veglegasta kirkja landsins og bezt gerð í þann tíð. Þangað var safnað mörgum merkis- og minjagripum, sem prýddu kirkjuna, og var hvorki sparað fé né fyrirhöfn til þess að gera þetta guðshús sem bezt úr garði. Hann varð og fyrstur manna til að meta gildi kveðskapar Hallgríms Péturssonar, og ef til vill hefur hann átt mestan þátt í, að menn komu svo snemma auga á, hvílíkur fjársjóður ljóð hans voru fyrir þjóðina.
Það er raunalegra en tárum taki að sjá hirðuleysi þjóðarinnar gagnvart þessum tveim stöðum, og þá ekki sízt hvað þessa kirkju áhrærir. Báðar eru þessar kirkjur rúnar að öllu skrauti, eru með minnstu kirkjum á landinu og svo fornfálegar, að vindur og regn blæs þar í gegn að kalla. — Það er viðurkennt, að nú eru sérstæðir tímar og því eigi auðgert að byggja þessar kirkjur nú þegar, en við lifum í þeirri von, að bráðlega breytist til betra horfs, og færi þá vel á því, að þessar kirkjur yrðu meðal hinna fyrstu bygginga, sem reistar yrðu. — Að því er vikið í grg., að við flm. ætlumst til, að byggingarnar verði að stærð við hæfi safnaðanna, og teldum við hæfilegt, að kirkjurnar rúmuðu um 200 manns hvor. Teljum við, eins og högum er nú komið, að eigi væri nauðsynlegt að leggja mikið fé til stórra bygginga, en hins vegar þyrfti kirkjurnar að vera það rúmgóðar, að við sérstök tækifæri hefði þar rúm allmikill fjöldi manna. — Hvað Skálholtskirkju áhrærir, teldi ég sjálfsagt, að byggingin væri það stór, að þangað mætti safna ýmsum þeim minjagripum, sem þaðan hafa verið fluttir; og væri þeim fenginn þar öruggur og góður geymslustaður.
Við Íslendingar höfum verið taldir söguþjóð, og má það að sumu leyti til sanns vegar færa. En hvað ræktarsemi og virðingu fyrir okkar sögu snertir, skortir mjög á, hvað þessa tvo staði áhrærir. — Ég gat þess fyrr í ræðu minni, að Skálholt hefði verið gefið til þess að vera biskupssetur meðan biskupsstóll væri á Íslandi. Það heit var ekki betur haldið en svo, að Skálholt var með fyrstu stólsjörðum, sem seldar voru eftir móðuharðindin: Vel má vera, að einhver kynni að álíta, að ábúendur á þessum stað hefðu getað sýnt honum meiri sóma en gert hefur verið, þótt ekki stæðu þeir fyrir kirkjubyggingu. Ég skal ekki fara út í þá sálma, enda mundi ég ekki vera talinn óvilhallur, hvað það snertir, en þeir, sem þekkja til bóndasýslana, vita, að það er hverjum ábúanda fjötur um fót, þegar ábúð er ekki tryggð nema frá ári til árs.
Nú hefur ríkið eignazt Skálholtsstað, og vona ég, að það sjái sóma sinn í að sjá kirkjubyggingunni borgið hið fyrsta, enda efast ég ekki um, að það muni verða gert.
Tómlæti í þessum efnum má án efa rekja til þess, hvernig ástatt hefur verið um eignarhald á staðnum. Ég mun svo ekki fara um þetta fleiri orðum. Ég vona, að hv. d. samþ. till., og ég ber það traust til hæstv. ríkisstj., að hún sinni málinu eftir beztu getu.