25.04.1941
Neðri deild: 44. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (3583)

118. mál, síldarmjölsbirgðir til fóðurtryggingar

*Stefán Stefánsson:

Þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, er ekki mikil fyrirferðar. En ég leyfi mér að fullyrða, að það, hvernig fer um niðurstöðu í því máli, sem hún ræðir um, hefur kannske meiri áhrif heldur en mörg önnur mál, sem talin hafa verið stórmál á hæstv. Alþ.

Hv. 2. þm. Skagf. trúir því ekki, að svo illa geti til tekizt, að ekkert síldarmjöl verði unnið í landinu á næsta sumri. Ég get vitanlega ekkert fullyrt um þetta frekar en hann. En mér virðist, að annaðhvort verði um mikla síldarmjölsframleiðslu að ræða í sumar eða enga. Ef Þjóðverjar gera árás á síldarverksmiðjur okkar, stendur þar ekki steinn yfir steini, en maður vonar, að það komi ekki fyrir. En komi það fyrir, getum við ekki bætt okkur það.

Ég tel möguleika á, að ríkisstj. skerist í þetta mál, og ef við eigum þess kost að kaupa þetta síldarmjöl, getur verið mjög varasamt, að það verði flutt út úr landinu. Hvers virði eru okkar pund, sem við eigum? Eigum við ekki nóg sterlingspund? Hvers virði verða þau að síðustu?

Ég vil beina því til hv. landbn., að hún leggi til, að þetta mjöl, sem liggur hjá síldarverksmiðjum ríkisins á Raufarhöfn, verði allt keypt upp.

Þarna á Raufarhöfn eru tugir þús. síldarmjölssekkja. Er ekki ástæða til þess að flytja þetta mjöl eitthvað til, til þess að ekki sé hægt að eyðileggja það allt með einni sprengju, því að ekki þyrfti nema eina sprengju til þess að eyðileggja það allt, eins og það er nú geymt allt á einum stað.

Mig langar til, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér upp ummæli hæstv. forsrh. 1937, þar sem hv. 2. þm. Skagf. virtist ekki vilja við það kannast, að hann hefði verið skipaður í n. til þess að athuga fóðurmjölsbirgðir í landinu. Í Alþt. 1937, C-deild 190. bls., eru þessi orð hæstv. forsrh. í umr. um frv. um fóðurmjölsbirgðir:

„Án þess að fara að ræða um þetta frv., vil ég segja frá því, að þetta mál er í undirbúningi. hjá Framsfl., og var það þegar í þingbyrjun.“ Og örlitlu síðar í ræðunni segir ráðh.: „Tveir af þm. Framsfl., hv. þm. Mýr., Bjarni Ásgeirsson, og hv. 2. þm. Skagf., Steingrímur Steinþórsson, hafa samið frv. um málið og höfðu það fullbúið fyrir viku. Ég býst við, að það verði bráðlega borið fram hér í d.“

Ég veit nú ekki, hvor þeirra, hv. 2. þm. Skagf. nú eða hæstv. forsrh. 1937, fer með rangt mál. En þeir geta ekki báðir farið með rétt mál, þar sem hv. 2. þm. Skagf. vill ekki við það kannast nú, sem í orðum hæstv. ráðh. fólst þá um þetta atriði.