30.04.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Ísleifur Högnason:

Viðvíkjandi síðari hluta yfirlýsingarinnar, sem hæstv. ráðh. gaf, vildi ég segja, að mér þykir ekki hafa verið undið nógu skjótt að því að tilkynna mótmæli þau, er Alþ. samþ. vegna atburðanna s.l. sunnudag, þar sem liðið hafa allt að 24 klst. frá því að verknaðurinn var framinn og þangað til mótmælt var. Þessir hernumdu Íslendingar, sem sendir voru úr landi sem herfangar, voru í svo miklum lífsháska á þeirri ferð, að ekki er ómögulegt, ef mótmæli hefðu komið strax til brezku herstjórnarinnar, að herstjórnin hefði látið snúa skipunum við og flytja þá aftur hingað til lands, ekki sízt þegar vitað er, að alþýða í landinu er æf yfir þessum aðgerðum og brezka herstjórnin hefur haldið, að fólkið væri sömu skoðunar og blað utanrmrh. um, að Þjóðviljann ætti að banna og forystumenn Sósíalistafl. ætti að múlbinda. Ég lýsi vanþóknun minni á þeim drætti, sem orðið hefur á því að mótmæla þessum aðgerðum brezku herstjórnarinnar. Og jafnvel hefði ríkisstj. átt að senda mótmæli áður en Alþ. gat samþ. mótmæli. Ég álít það hafa verið skyldu ríkisstj. vegna þeirrar lífshættu, sem mennirnir voru settir í, að mótmæla tafarlaust, þegar stj. vissi um handtökuna, en það hefur verið látið undir höfuð leggjast.

Þá vil ég spyrja um það, hvort ekki hafi verið gerð krafa til brezku herstjórnarinnar um það, að dagblað Sósíalistafl. fái að koma út sem fyrst og hvaða ráðstafanir ríkisstj. hafi gert til þess að fá upplýsingar um það hjá brezku herstjórninni, með hvaða takmörkunum blaðið mætti koma út, því að ég býst ekki við, að það hafi verið með hálfum huga gert að mótmæla því hér, að blað þessa flakks var bannað. Ef brezka herstjórnin setur það eitt fyrir sig, að í blaðinu hafi verið andbrezkur áróður, sem ég álít ekki að hafi verið meiri en réttlátt var og ekki meiri andbrezkur áróður heldur en hafður er hér í útvarpinu, þar sem herstjórnartilkynningar Þjóðverja eru birtar þrisvar á dag. Þegar þetta er athugað,virðist mér ætti að vera vegur til þess, ef ríkisstj. óskar eftir því, að þetta blað fái að halda áfram að koma út. Ég vona, að hv. þm. skilji, að mikill hluti þjóðarinnar er með þessum aðgerðum sviptur aðalmálgagni sínu, — að verkamenn, sem ég þori að fullyrða, að er meiri hluti verkamanna í landinu, eru sviptir málgagni sínu, sem er það vopn, sem þeir nauðsynlega þurfa að hafa til þess að vernda rétt sinn gagnvart þeim, sem vilja á þeirra rétt ganga.