26.04.1941
Efri deild: 45. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (3600)
116. mál, hestavegir meðfram akbrautum
*Flm. (Jónas Jónsson) :
Ég er þakklátur þeim tveim hv. þm., sem hafa minnzt á málið og sýnt því velvilja. Þó að ég telji, að það væri kannske ekki nauðsynlegt að vísa því til nefndar, er ekki nema gott, að það sé gert. Það er rétt, sem síðasti ræðumaður tók fram, að framkvæmdir kosta nokkurt fé, og er ekki úr vegi að athuga það frá byrjun. En út af því, sem hv. þm. Vestm. sagði um kostnaðinn við rannsókn málsins, þá hugsa ég, að vegamálastjóri sem verkfræðingur framkvæmi hana. Það getur ekki orðið stórýtarleg rannsókn, því að mest er hér um ruðninga að ræða. En þó að ekki þurfi að hafa tvær umr. kostnaðarhliðarinnar vegna, er það æskilegt að öðru leyti.