22.04.1941
Sameinað þing: 7. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (3614)
65. mál, orlof
*Héðinn Valdimarsson:
Þetta mál hefur oft verið rætt í verkalýðsfélögunum, og er enginn vafi, að verkamenn óska eftir föstu skipulagi. Eins og hv. flm. gat um, hafa nú orðið ýmis félög með samningum við vinnuveitendur tryggt sér nokkurt frí. Ég vil geta þess í sambandi við stærsta verkalýðsfélagið, verkamannafélagið Dagsbrún, að við síðustu samninga var þess getið við atvinnurekendur, að mál þetta yrði tekið upp til samninga á þessu ári, og var vel undir það tekið, en þó er því ekki að neita, að bezt er að fá löggjöf um þetta, því að það gæti tekið lengri tíma að fá frjálsa samninga, og eins væri það undir því komið, hvað sterkir aðilar það væru, sem að samningunum stæðu. Af þessum ástæðum er ég því fylgjandi, að þessi leið sé farin, en vil þó koma með nokkrar aths. Fyrst og fremst vil ég beina athygli að því, sem talað er um, hvernig n, skuli skipuð. Svo er til ætlazt, að einn sé skipaður af Alþýðusambandi Íslands, annar af Vinnuveitendafélaginu og sá þriðji án tilnefningar. Nú er það þannig, að utan Alþýðusambandsins er allmikið af stórum verkalýðsfélögum og hefur ekki farið fjölgandi í því sem stendur. Ég mun þó ekki setja mig á móti, að Alþýðusambandið fái þarna mann, en vil leggja áherzlu á, að séð verði fyrir, að leitað verði álits verkalýðsfélaganna í þessum málum, og þá ekki sízt þeirra, sem eru utan Alþýðusambandsins, þannig að engin hætta væri á því, að fulltrúi Alþýðusambandsins héldi öðru fram en fulltrúi þeirra félaga. Ég vil því við 2. umr. eða fyrr koma með brtt. um, að leitað sé álits verkalýðsfélaganna, áður en n. skilar áliti.
Í till. stendur, að n. skuli athuga, á hvern hátt væri hægt að fá samvinnu við Ferðafélag Íslands, eigendur sumar- og vetrardvalarstaða, sérleyfishafa fólksflutninga á landi og skipafélög um ódýra og hentuga dvöl verkamanna og sjómanna og skylduliðs þeirra og fyrirgreiðslu á flutningum. Ég álít, að n. eigi að hafa nokkru óbundnari hendur, þannig að ætlazt sé til, að hún byggi til nokkurs konar „plan“ um, hvernig sé hægt að haga þessum málum, því að ef menn hugsa sér að koma á almennu orlofi, þá er ekki nóg, þó að samningar væru gerðir við sérleyfishafa og eigendur gistihúsa, heldur verður að sjá svo til, að allt þetta fólk geti einhvers staðar komið sér fyrir, en til þess nægja gistihúsin alls ekki. M. ö. o., það þyrfti að sjá fyrir, að nokkuð mikill mannfjöldi á vissum tímum gæti dvalið hér og þar á landinu í einhvers konar skýlum. Menn vita, að verkamenn hafa reist sér tjaldbúðir, og yfirleitt er hægt á sumrin að koma upp ódýrum og góðum skýlum, en þetta þyrfti að taka með um leið og þetta mál er athugað, og er réttast, að n. geri það.
Þá er þriðja atriðið, sem ég á sínum tíma mun gera brtt. um, en það er viðvíkjandi kostnaðinum við þessa n. Mér finnst ástæðulaust að borga henni nokkuð. Ég geri ráð fyrir, að fulltrúar Alþýðusambandsins og Vinnuveitendafélagsins mundu ekki gera kröfu til kaups fyrir þetta starf, og þriðja manninn, sem væntanlega yrði frá ríkisstj., væri sennilega hægt að skipa þannig, að saman færu hæfileikar til starfsins, en þyrfti þó ekki að borga honum kaup. Ég mun því á sínum tíma koma með brtt. í þessa átt, en mun að sjálfsögðu greiða till. atkv. til síðari umr.