22.04.1941
Sameinað þing: 7. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (3615)

65. mál, orlof

Skúli Guðmundsson:

Ég tók ekki eftir því, að hv. 1. flm. till. talaði um, að þetta mál færi til n., en mér þykir eðlilegt, að sú meðferð verði höfð á málinu, af því að ég sé, að gert er ráð fyrir tveim umr., og yrði till. þá sennilega vísað til allshn. Sþ.

Ég vil aðeins beina því til n., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar, hvort hún vildi ekki við athugun málsins, ef hún kemst að þeirri niðurstöðu, að rétt sé að skipa slíka n., taka til athugunar, hvort hægt væri að gera till. eitthvað víðtækari, svo að væntanleg löggjöf í þessu efni tæki til fleiri stétta þjóðfélagsins en hér eru nefndar. Kemur mér þá í hug, að það væri eðlilegt, að þetta næði t. d. til bænda og ef til vill fleiri, sem eru ekki nefndir hér.