14.06.1941
Sameinað þing: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (3636)
71. mál, milliþinganefnd um skólamál
*Frsm. (Jörundur Brynjólfsson) :
N. hefur haft þetta mál til athugunar, og eins og nál. ber með sér, voru menn ekki fullráðnir um afgreiðslu málsins, þegar sú ákvörðun var tekin að afgreiða málið til Alþ., svo að það gæti gert endanlega. út um það. Nokkrir hv. nm. eru þeirrar skoðunar, að nokkur ástæða sé til að taka skólakerfi landsins til ýtarlegrar yfirvegunar, og get ég vísað til þeirrar grg., sem hv. flm. till. kom með við fyrri umr. málsins. Ég hygg, að það hafi sýnt sig að undanförnu, að ástæða sé til að taka skólakerfi landsins til athugunar og gera á því ýmsar breytingar, sem reyndar hefur verið unnið að hin síðari ár, og okkar fræðsla á marga lund verið gerð hlutskiptari og verklegri heldur en hún áður var. En þó að við séum nokkuð komnir áleiðis í þeim efnum, þurfum við að komast enn þá lengra, Jafnframt bóklega náminu þurfa ungmennin að fá leiðbeiningu í því, sem lýtur að ýmiss konar störfum. Þess vegna erum við nokkrir nefndarmenn fylgjandi þessari till. og væntum þess, að hv. Alþ. geti á hana fallizt. Annars geta þeir meðnm., sem eru í vafa um, hvernig þeir skuli afgreiða þetta mál, fengið allar upplýsingar um það hjá hv. flm. og menntamálaráði. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta af hálfu n.