16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (3666)

138. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands h/f

Frsm. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Ég skal eigi teygja lopann um þetta mál. Ég veit, að þingheimur muni þegar vera búinn að mynda sér skoðun á því.

Hv. frsm. meiri hl. sagði, að ég hefði ekki farið rétt með mál hans. Mér skildist, að .hann teldi ekki ólíklegt, að hlutabréfaeigendur vildu ekki selja nú. Ég geri ráð fyrir, að það geti verið rétt, en ég verð að segja, að ég held, að minni nauðsyn sé nú en áður að ráðast í þessi kaup vegna hlutabréfaeigenda, því að það er betur ástatt í peningamálum nú en áður.

Ég vil leiða athygli að því, að ég gaf ekki tilefni til, að farið var að blanda saman ýmsum hlutabréfaeigendum. En ég verð að segja, að 1300 þús. kr. hlutabréf, sem innlánseigendur hafa keypt, og 400 þús. kr. innieign á hlaupareikningi er allmikil fúlga. Þá getur og farið svo, að leysa verði inn nokkrar millj. kr. í hlutabréfum útlendinga. Því hefur verið haldið fram, að svo mundi fara, að það yrðu allt að 5 millj., sem þyrfti að leysa inn af nafnverði bréfanna. Þetta þarf nákvæmrar athugunar við, og það er því ekki að þarflausu að vilja ekki ganga lengra en svo að fela ríkisstj. að undirbúa málið og leggja það fram á næsta þingi. Það þarf athugunar við utan lands og innan. Rökst. dagskráin er því varfærnasta leiðin, og ég vænti, að hún verði samþ. En ég vil benda hv. frsm. meiri hl. á, að „sparifjáreigendur“ er eiginlega skakkt orð í þessu sambandi. Það var kallað innlánseigendur í Íslandsbanka, og er réttara að orða það svo. En það þarf ekki að fella till. af þeirri ástæðu.

Ég vil mótmæla því, að ég hafi verið að mála fjandann á vegginn, eins og hv. þm. Vestm. sagði. Ég hef aðeins flutt mitt mál eins og ég taldi réttast og sannast.

Ég vil endurtaka, að mér finnst allt mæla með samþ. rökst. dagskrárinnar. Varfærnin er alltaf rétt og sjálfsögð.