16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í D-deild Alþingistíðinda. (3667)
138. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands h/f
Ásgeir Ásgeirsson:
Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls, en það féllu þau orð hér í þingsalnum, að þegar Íslandsbanka var lokað, hafi tveir nafngreindir menn gengið um og „snuðað“ út úr fólki innlánsfé þess. Þetta er svo ómaklega mælt í sambandi við endurreisn Íslandsbanka, að ég get ekki látið það sem vind um eyrun þjóta. Sannleikurinn er, að það fé, sem safnaðist sem hlutafé, voru ekki peningar, sem lágu lausir fyrir, heldur innistæður, sem voru sama sem tapaðar. Til þess að þetta fé sæist nokkurn tíma aftur, varð að endurreisa bankann, en sú aðferð hefur alls staðar tíðkazt, að rannsaka, hvort innlánseigendur vildu láta endurreisa þá stofnun, sem fé þeirra var í. Með því að safnað var hjá innistæðueigendum tæpum 3 millj. í hlutafé, varð bankinn endurreistur, og reynslan hefur sýnt, að þessir menn unnu gott verk fyrir alla. Ég efast um, að bankinn hefði verið endurreistur, ef innistæðueigendur hefðu ekki sýnt vilja sinn, og þá því aðeins, að ríkissjóður hefði lagt fram meira hlutafé. En ef nokkuð væri til í þessum ómaklegu ummælum, sem ég stóð upp til að leiðrétta, væri ríkissjóði enn skyldara en ella að sjá það við innistæðueigendur.
Hitt, hvort hlutabréf Útvegsbankans eru einskis virði eða í „parí“, vil ég ekki ræða. Í öllum till., sem fyrir liggja, er bara talað um að meta bréfin, en ég vil fullyrða, að síðan bankinn var endurreistur, hefur aldrei verið auðveldara að meta þau en nú. Ég skal ekki skýra það nánar, en allir, sem kunnugir eru hag bankans, skilja það. Sá eini vafi, sem nú leikur á um verðmæti bréfanna, er fólginn í þeim sterlingspundum, sem bankinn liggur með, en sá vafi nær til allrar bankastarfsemi í landinu og alls okkar þjóðarbúskapar.
Það hefur verið leiðrétt, að hér sé um stórfé að ræða. Það kemur víst engum til hugar, að hlutabréfin standi í „parí“. Almennt er álitið, að þau standi í milli 25–50%, og í till. er eingöngu rætt um kaup hlutabréfa af þeim, sem hafa lagt fram innistæðufé á sínum tíma, 1.3 millj. kr. Ef einhverjir þeirra álíta hlutaféð rúmlega 1/3 virði, væri um að ræða hér um bil 400 þús. kr. En þeim, sem eru nýbúnir að samþ. að borga Landsbankanum 200 þús. kr. á ári fyrir að geyma sterlingspund, ætti ekki að ofbjóða þessi smáupphæð í eitt skipti fyrir öll. Þeir, sem aldrei vildu neitt fram leggja, fengu greiðslu á öllum sínum innistæðum, en hefðu ekki fengið það, ef allir hefðu hagað sér eins og þeir. Ef á að kaupa bréfin með sannvirði, er ekki verið að kasta peningum á glæ, heldur kemur verðmæti á móti. Þessi bréf hefðu aldrei á frjálsum markaði komizt í sannvirði, vegna — óvissu um það, hvenær vextir yrðu greiddir. Það væri æskilegt, að ríkisvaldið vildi sinna þessu máli, en þangað til það er komið á fastan grundvöll, verða alltaf einhver leiðindi í kringum það. Það fólk, sem átti bréfin upphaflega, er nú gamalt og efnalítið, og þeir, sem þá höfðu með höndum atvinnurekstur og ráku viðskipti við bankann, hafa margir orðið að gefast upp. Ríkið sleppur vel, ef ekki þarf annað en kaupa bréfin við sannvirði.
Ég skal taka undir það, að það er ekki svo mikill munur á þessum tveim till., en ég mun þó fylgja þáltill. breyttri, því að þar fær stj. heimild til fljótrar afgreiðslu, og ég hygg, að þar sé um enga áhættu að ræða.