16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (3673)

172. mál, verðuppbót á mjólk og mjólkurafurðir

Flm. (Pétur Ottesen) :

Ég skal verða mjög fúslega við tilmælum hæstv. forseta um það að ræða ekki mikið um þetta mál.

Tilgangur þessa „Bretasjóðs“ svo nefnda var sá að jafna ósamræmi, sem fram kom í verði framleiðsluvara landsmanna, þannig, að sem mestum jöfnuði yrði komið á um verðlag innlendra framleiðsluvara. Það er þess vegna augljóst mál, að mjólk og mjólkurafurðir eiga að falla undir þessi verðjöfnunarákvæði og hluti af sjóðnum að ganga til verðuppbótar á þessar vörur.

Nú er mér tjáð, að nefnd sú, sem hefur þessi mál til meðferðar, þessi verðjöfnunarmál, sé nú farin að rannsaka þetta mál og leita að grundvelli undir verðjöfnunina. Hins vegar hefur mér verið tjáð, að enn sem komið er hafi ekki borið á góma, að þessar afurðir kæmu undir þessa verðjöfnun eða þau ákvæði, að nokkur uppbót úr þessum sjóði fáist á þessar vörur.

Ástæðan til þess, að ég hef flutt þessa till. hér, er einmitt af þeim rótum runnin.

Það getur enginn vafi leikið á því, að samkvæmt tilgangi þessa sjóðs, frá almennu sjónarmiði séð, eiga mjólk og mjólkurafurðir að heyra undir þessa verðjöfnun, því það er vitað, að verðbreytingar þær, sem orðið hafa á þessum vörum á s. l. ár í, standast engan samanburð við verðhækkun þá, sem varð á þessu tímabili á ýmsum öðrum framleiðsluvörum. Þess vegna hljóta þeir, sem hér eiga hlut að máli, að eiga sanngirniskröfu á því, að þessar vörur komi einnig til greina.

Nú er mér sagt, að orsakirnar til þess, að enn hefur ekki verið rætt um þessar vörur í nefndinni, muni vera þær, að í samningnum væri komizt þannig að orði, að hann tæki eingöngu til þeirra vara, sem væru framleiddar til útflutnings. Þetta er engan veginn nægileg skýring. Það er alkunnugt, að allmikið hefur verið flutt út af ostum á undanförnum árum til Þýzkalands, og útflutningur þessi hefur farið vaxandi síðustu árin. Ef gera mætti ráð fyrir, sem ekki er ólíklegt. að svipuð verðhækkun hefði orðið á ostinum í Þýzkalandi, eftir að stríðið skall á, eins og reynslan sýndi, að orðin var á gærunum til dæmis að taka, sem tókst að selja þangað haustið 1939, þá er augljóst, hve gífurlegt tjón mjólkurframleiðendur hafa beðið við það, að þessi markaður skyldi lokast.

Samkvæmt orðalagi samningsins á að sjálfsögðu að koma verðuppbót á ostana úr sjóðnum, — á því getur enginn vafi leikið.

Hvað mjólkina og aðrar mjólkurafurðir snertir, sem í venjulegum skilningi teljast ekki til útflutningsvara, hef ég orðað till. þannig, að ríkisstj. hlýtur að vera það mjög innan handar að fá samþykki fulltrúa brezku stjórnarvaldanna, sem að samningunum stóðu, til að viðurkenna réttmæti þess, að þessar framleiðsluvörur geti einnig komið til greina við uppbótargreiðslur úr sjóðnum.

Ég sé ekki ástæðu til að reifa þetta mál frekar, þar sem tíminn er svo naumur, eins og hæstv. forseti hefur lýst, en ég vænti þess, að Alþingi líti þannig á þetta mál, að eðlilegt sé að samþ. slíka till. sem þessa. Ég vænti þess einnig, að hæstv. ríkisstjórn fylgi því fast eftir, að þessu megi verða til leiðar komið.