12.06.1941
Efri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (3712)

115. mál, húsnæði handa hæstarétti

*Flm. (Jónas Jónsson) :

Þetta mál hefur verið hér nokkuð lengi á ferð, en hefur að því leyti ekki sakað, að það mundi hvort sem er ekki hafa verið ráðizt í neinar aðgerðir fyrr en með haustinu. Till. gengur í þá átt að skora á ríkisstj. að leita fyrir sér um það að koma hæstarétti fyrir í betra húsnæði en hefur verið. Er sérstaklega bent á háskólann.

Það er sennilega öllum kunnugt, að húsnæðið, sem hæstiréttur hefur, er með öllu óviðunandi. Ég man eftir, að dómarar sögðu við mig fyrir fáum missirum, þegar stóð til, að hingað kæmu margir norrænir lögfræðingar, að þeir kviðu fyrir að sýna stéttarbræðrum sínum það húsnæði, sem rétturinn ætti við að búa. Og það er skemmst af að segja, að það er með öllu óviðunandi, bæði fyrir dómara og aðra, sem þar vinna. T. d. segja mér málafærslumenn, sem starfa þar, að þeir hafi ekki einu sinni húsaskjól, þegar þeir eru að bíða eftir því að koma að sínum málum. Þetta hús er að öllu leyti óánægjulegt mjög og engan veginn samboðið þessari stofnun.

Þegar nú háskólinn hefur til skamms tíma, eða um 30 ára skeið, verið í þessu húsi og komizt af, þótt þröngt væri, þá nær ekki nokkurri átt, að hann hafi ekki mikið húsrými afgangs í sínu stóra húsi, enda er það svo. Það er þess vegna aðeins viljaatriði fyrir Alþ., hvort það vill þrýsta á það, að hæstiréttur fái betra húsnæði, og hvort hæstv. ríkisstj. vill vinna að því. Enn fremur, hvort háskólakennarar vilja sýna eðlilega tilhliðrunarsemi í þessu efni. Ég er ekki svo kunnugur störfum háskólans og húsakynnum, að ég áliti rétt að nefna í till. nokkurn sérstakan stað. Sumir kynnu að líta svo á, að óviðunandi væri fyrir háskólann að hafa nokkra óviðkomandi stofnun innan sinna vébanda. En ég hef tekið fram í aths. við ályktun þessa, að Bandaríkin, svo rík sem þau eru, höfðu hæstarétt í sínu þinghúsi — í heldur þröngum húsakynnum — eitthvað um 80 ár, — og það eru ekki nema 10 til 12 ár síðan sú ríka þjóð byggði yfir sinn hæstarétt. Ég sá þar hinn opinbera sal, og ég verð að segja, að hann var ekki ákaflega miklu stærri en einn sérstakur salur í háskólanum, sem væri ákaflega vel fallinn til að kveða þar upp dóma og láta fara fram málafærslu. Það er fyrirlestrasalurinn á neðstu hæð. Þar er sérstakur inngangur og sérstök fatageymsla, og salurinn er aldrei notaður nema á kvöldin. Ég hygg þar séu hundrað sæti, og salurinn er hinn snotrasti. Ég vil aðeins nefna þetta eina herbergi, af því að það stendur autt allan daginn alla daga ársins, — fyrirlestrar aðeins á kvöldin —, hins vegar er vitað, að hæstiréttur kveður aldrei upp dóma sína á kvöldin. Að öðru leyti ætla ég ekki að minnast sérstaklega á húsakynnin, en aðeins minna á, að læknadeildin, sem ég hygg að hafi ekki haft nema eina stofu hér niðri, hefur nú í raun og veru meiri part af húsinu öðrum megin við innganginn, að frátalinni efstu hæð, sem er ekki full hæð. Og þar sem það hefur verið látið í ljós hér, að læknadeildin væri svo stór, að það mætti að miklu leyti hætta að taka nemendur í nokkur ár, leiðir af sjálfu sér, að í þessum parti hlyti að vera hægt að láta eitthvert rúm fyrir hæstarétt og fyrir bókasafn. Það getur verið, að menn finni annan útveg, en ég hef ekki séð aðra eðlilegri lausn á þessu máli. Og ég álít alveg óhætt fyrir hv. d. að samþ. till. Það fer eftir því, hvað hv. ríkisstj. álítur við nánari athugun, hvort úr framkvæmdum verður. En þessi till. er byggð á þeirri staðreynd, sem alvarlega hefur verið rætt um, að hæstiréttur getur ekki verið í þeim húsakynnum, sem hann er nú.