12.06.1941
Efri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (3715)

115. mál, húsnæði handa hæstarétti

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég hlustaði ekki á ræðu hv. l. þm. Reykv., en út af því, sem ég hef heyrt af hv. flm. till. og eins og till. liggur fyrir, þá er ég á báðum áttum, hvort ég á að greiða þessu atkvæði eða ekki. Till. fer fram á það að skora á ríkisstj. að reyna að útvega hæstarétti húsnæði í háskólanum. Mér er ekki kunnugt um, hvort þetta húsnæði er þegar til í háskólanum. Hins vegar vitum við, að ástæður hæstaréttar eru ekki lakari nú heldur en þær hafa verið. Ég skal játa, að það væri óneitanlega skemmtilegt, ef hægt væri að koma í húsakynni, sem væru aðgengilegri og glæsilegri en þau, sem hann hefur nú. En meining mín með því að standa upp er sú, að ég tel fulla ástæðu til þess að málið verði athugað í nefnd, og hvort þessi möguleiki er fyrir hendi, sem ræðumaður fór fram á. Þó að þetta sé ekki nema áskorun, þá verður sú áskorun skoðuð sem bein skipun, ef till. nær samþykki. Ég vil því gera það að minni till., að málinu verði vísað til menntmn., þar sem það heyrir undir hana. Hv. flm. er líka í þeirri n., og hann hefur þá góða aðstöðu til að fylgjast með athugunum hennar.