30.04.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1265 í B-deild Alþingistíðinda. (41)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Út af síðari ræðu hv. 4. landsk. vil ég taka fram, að ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að það, hvort mótmælin væru borin fram nokkrum klukkustundum fyrr eða síðar, hefði ekki haft nein áhrif um það að auka eða minnka lífshættu þeirra manna, sem handteknir voru. Þá vil ég líka taka það fram að ég tel mér ekki fært að gera samning við brezk yfirvöld um það, á hvern hátt Þjóðviljinn mætti vera ritaður, til þess að hann fengi að koma út. Ef þeir, sem að honum standa, vildu gefa herstjórninni yfirlýsingu um þetta, kynni það að hafa einhver áhrif, en ríkisstj. getur ekki samið um það.
Út af þeim ummælum hv. 3. þm. Reykv., að blaðið Vísir hafa skýrt frá mótmælunum, áður en þau voru afgr. frá Alþ., vil ég taka það fram, að mér er ókunnugt, hvaðan blaðið hefur haft þar upplýsingar.
Viðvíkjandi mótmælunum út af árásum á íslenzk skip tek ég það enn fram, að það er venja, að mótmæli séu ekki birt fyrr en ríki það, sem mótmælin eru send, hefur fengið þau í hendur. Þessari reglu hefur íslenzka stj. fylgt, eins og. tíðkast annars staðar.