18.04.1941
Neðri deild: 40. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (449)
75. mál, leigutaka á húsnæði í sveitum og kauptúnum o.fl.
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Ég vildi gjarnan mega skilja brtt. n. svo, að þar væri aðeins um orðabreytingu að ræða, en ekki efnisbreytingu, þar sem sett er í till.: „ef nauðsyn krefur“, — í staðinn fyrir að í frv. stendur „ef þörf gerist“. Ég vil spyrja n., hvort hér sé um nokkuð meira að ræða en orðabreyt. Mér hefur skilizt, að hv. þm. væru sammála um það, að þörfin væri nú þegar fyrir hendi. É,g held, að það sé nauðsynlegt, að það komi fram, að ef orðið „nauðsyn“ kemur í staðinn fyrir „ef þörf gerist“, sé þar ekki átt við, að það beri að slá á frest þeim brottflutningi barna og kvenna, sem menn álíta nauðsynlegan.
Hvað snertir afstöðu hæstv. ríkisstj., þá eru þetta heimildarl., svo ríkisstj. hefur rúmt vald um þetta. Ég held, að það hafi komið fram í mestöllum þeim umr., sem hér hafa farið fram um þetta mál, og mun vera almennt álitið, að það sé sannarleg þörf á því, að hún beiti þessari heimild eins fullkomlega eins og hún sér . fært, og að það sé tilætlunin með samþ. þessa frv., að í einu einasta máli sé nú látið eitt ganga yfir alla, og að einu sinni sé það virkilega sýnt, hverju menn vilja fórna fyrir þá, sem. í hættu eru staddir.
Viðvíkjandi brtt. allshn. um það að fella burt „kaupstöðum og kauptúnum“, þá eru hvatirnar, sem til þess liggja, ekki nema réttar að því leyti, að það er auðvitað sjálfsagt, að jafnt sé flutt burt úr þeim sveitum, sem álitnar eru í hættu vegna loftárása, og fólkið úr þeim sveitum eigi auðvitað að hafa sama rétt og það, sem flutt er úr kaupstöðum og kauptúnum. En ég álít, að heppilegt væri, að það kæmi greinilegar fram, hver meiningin væri, enda hefur það komið fram hjá einstaka þm., að það væri ella hætt að nota orðalag brtt. allshn. til einhverra undanbragða.
Ég er hér með skriflega brtt. og vil leggja til, að eins og frvgr. er nú orðuð, bætist aftan við fyrri málslið fyrstu gr.: „og þeim sveitum, sem einnig eru álitnar í hættu vegna loftárása“. Ég álít, að með slíku orðalagi náist algerlega Það, sem átt er við, og líka það, sem er réttlátast gagnvart sveitunum í þessu efni. Ég álít þetta orðalag að þessu leyti betra heldur en eins og það er í brtt. n. Þetta er nákvæmara orðalag, og þess vegna síður möguleikar til þess að breyta þarna út af því, sem er tilgangurinn með þessu frv.