12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í B-deild Alþingistíðinda. (45)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Héðinn Valdimarsson:

Ég hef heyrt, að Helgi Briem sitji enn þá í Portúgal og fáist ekki viðurkenndur sem fulltrúi Íslands, þar sem hann hafi átt að vera á Spáni. Hann fór þangað í september, og nú vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. utanríkismálaráðherra, hvort ætlazt sé til, að hann sitji þarna ótakmarkað, eða hvort hans sé bráðum von heim.