24.03.1941
Neðri deild: 22. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

32. mál, fjarskipti

*Frsm. (Gísli Sveinsson) :

Herra forseti! Til þessara ákvæða hefur ekki þurft að taka, svo að ég viti. En þeim, sem lögin sömdu, hefur þótt eðlilegt, að ábyrgð á þessum rekstri gæti lagzt á hreppsfélögin, og því var þessi heimild gefin.