02.04.1941
Neðri deild: 29. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
32. mál, fjarskipti
Skúli Guðmundsson:
Ég vil þakka hv. samgmn. fyrir brtt. hennar. En ég vil nota þetta tækifæri til að spyrja hv. frsm., hvort n. hafi ekki gert um það athugun að reyna að finna annað heppilegra orð en „fjarskipti“.
Mér þykir ólíklegt annað en að n. hafi hugsað um þetta, því þótt e. t. v. megi segja, að nafnið skipti ekki höfuðmáli, þá er nú samt ekki sama, hvaða heiti þessu er valið.
Ég skal aðeins geta þess, án þess að ég ætli að flytja um það brtt., að stundum hefur verið talað um „firðtal“ og „firðskeyti“. Og þrátt fyrir það, að forskeytið „firð“ í þessu sambandi sé e. t. v. ekki orðið fast í málinu, þá hefur það þó verið notað, og margir kannast við það. Ég vil því spyrja, hvort hv. n. hafi ekki dottið í hug að breyta nafninu og taka upp nafnið „firðskipti“ í stað orðsins „fjarskipti“. Því bæði er það nafn ekki gleggra en það, sem ég nefndi, og eins ber hins að gæta, að menn hafa viljað rugla þessu orði „fjarskipti“ saman við orðið „fjárskipti“, sem bráðlega þarf að setja löggjöf um, en aðrir hafa alls ekki skilið þetta nafn.