15.05.1941
Neðri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (49)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Ísleifur Högnason:
3. þ. m. sendum við þm. Sósíalistafl.. ríkisstj. bréf með tilmælum um, að hún kæmi því til leiðar, „að haldinn yrði fundur með fulltrúum flokksins og fulltrúum Breta til þess að ræða möguleikana á því að fá gefið út blað fyrir flokkinn. Enn fremur að fá skýrt frá því, hvers vegna Þjóðviljinn var bannaður, og fá tilgreint, hvaða greinar í blaðinu það hafa verið, sem orsökuðu bannið. Afrit af þessu bréfi sendum við til sendiráðs Breta, sem svaraði 2 dögum seinna. Aftur á móti höfum við ekkert svar fengið frá ríkisstj. Nú er liðinn hálfur mánuður, síðan þetta bréf var skrifað, og vildi ég ekki láta undir höfuð leggjast að láta d. vita um þetta mál. Það lítur út fyrir, að ríkisstj. ætli að hundsa okkur í þessu, en hins vegar hefur okkur skilizt, að almennur áhugi sé fyrir því á Alþ., að við fáum að gefa út blað.
Ég verð að átelja þennan slóðaskap ríkisstj. harðlega og spyrjast fyrir um það, hvort það sé meiningin að sniðganga málið.