21.04.1941
Efri deild: 41. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (499)

50. mál, gjaldeyrisverslun o.fl

*Frsm. (Bernharð Stefánsson) :

Þetta mál er komið frá Nd. og hefur nú verið um langan tíma til athugunar í fjhn. Ed. Er það fyrir ofurlítið óhapp eða af gleymsku, að n. hefur ekki skilað nál. fyrr en þetta. Eins og sést á nál. á þskj. 197, leggur fjhn. til, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum. Efni þessa frv., eins og það liggur fyrir óbreytt, er í fyrsta lagi að heimila ríkisstjórninni að setja reglugerð um, að allur sá erlendi gjaldeyrir, sem menn nú eiga eða kunna að eignast, skuli ganga til bankanna. En áður hafði svo verið ákveðið, að þetta ákvæði næði aðeins til þess gjaldeyris, sem menn fengu sem andvirði fyrir útflutningsvöru. Sú breyt., sem frv. felur í sér, stafar af hinu breytta ástandi í landinu, að útlendur gjaldeyrir getur nú komizt í hendur manna af fleiri ástæðum en áður var um að ræða.

Í öðru lagi eru með þessu frv. numin úr gildi lög um gengisskráningu og gjaldeyrisverzlun frá 4. júní 1924 ásamt breyt., sem gerðar hafa verið á þeim 1. Þessi l. hafa að nafninu til verið í gildi, jafnvel eftir að bönkunum var falinn einkaréttur á að verzla með erlendan gjaldeyri, en algerlega þýðingarlaus urðu þau, þegar gengi íslenzku krónunnar var fastákveðið með 1. frá 1939. Jafnframt frv. hefur n. haft til athugunar bréf frá viðskiptamálaráðuneytinu, dags. 13. marz þetta ár, til fjhn. Nd., en hún hafði ekki borið fram neinar breyt. vegna bréfs þessa. Í bréfinu leggur viðskiptamálaráðuneytið til, að póststjórninni verði einnig heimilað að verzla með erlendan gjaldeyri innan þeirra takmarka, sem ráðuneytið setur. Það er tekið fram í bréfinu, að póststjórnin þurfi samkvæmt alþjóðasamningi, sem Ísland er þátttakandi í, að reka nokkra verzlun með erlendan gjaldeyri, t. d. póstávísanir, póstkröfur og þess háttar. Brtt. n. við frv. á þskj. 197 er um það að taka upp í frv. ákvæði, sem heimila póststjórninni að verzla með erlendan gjaldeyri innan þeirra takmarka, sem ráðuneytið setur. Ég hygg, að mál þetta sé svo einfalt, að ekki þurfi nánari skýringar við, og till. n. er, að málið verði samþ. með þessum breyt.