21.04.1941
Efri deild: 41. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (501)
50. mál, gjaldeyrisverslun o.fl
Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Ég verð fyrst að biðja afsökunar á því, að það vill svo illa til, að þegar hv. þm. Vestm. ber fram þessar fyrirspurnir, þá er ég svo hás, að það er illt að heyra til mín. Þrátt fyrir það verð ég að gera grein fyrir þeim málum, sem hv. þm. spurði um, en vil taka það fram, að það verður að virða mér það til vorkunnar, að hv. þm. Vestm. ber þetta fram án þess að mér hafi verið kunnugt um þetta áður. Einstaka atriði eru líka þannig, að það er erfitt að svara þeim nema með fyrirvara, eins og t. d. ýmsar upphæðir, sem hann spyr um á tilteknum tíma. (JJós: Ég skal gjarnan sætta mig við, að þessu verði frestað). En samt sem áður ætla ég að gera grein fyrir einstaka atriðum, en koma síðar inn á önnur atriði; sem við getum þá komið okkur saman um að fresta.
Ég vil þá sérstaklega benda hv. þm. á það, að nú á næstunni kemur til umr. frv. um gjaldeyrislögin, þar sem ákveðið er að yfirfæra ekki eða umreikna ekki í íslenzkar. kr. nema hluta af andvirði framleiðsluvaranna, og í sambandi við þetta mun ég koma inn á þær spurningar, sem snerta það sérstaklega.
Þá ætla ég fyrst að víkja máli mínu að þeim þætti málsins, sem snýr að gjaldeyrisástæðum almennt frá því árið 1940, — viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm., hvort það hefði verið fyllilega ljóst á því ári, hvert stefndi í þeim efnum, og hvort — nægilegar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að leyfa vöruinnflutning til landsins, og þá sérstaklega, hvaða aðilar stæðu aðallega á móti því, að vöruinnflutningur geti átt sér stað.
Ég ætla þá fyrst að fara nokkrum orðum um þessa hlið málsins. Ég ætla þá að rifja það upp fyrst í stað, að snemma á árinu 1939 eða í árslok 1938 voru menn uggandi um það, að styrjöld gæti skollið á, og þetta varð til þess, að þáverandi ríkisstj. og eins sú, sem tók við, þegar þjóðstjórnin var mynduð, gerði sér allt far um að fylgjast með því, hvaða vörutegundir flyttust til landsins og sjá um, að það væru þá fyrst og fremst þær nauðsynjavörur, sem þjóðin getur ekki verið án.
Á þessu starfi var byrjað árið 1938 og haldið áfram 1939. Á þessum tíma og reyndar miklu lengur átti þjóðin við mikla greiðsluerfiðleika að etja, og það var þá þegar aðalstarf þeirra, sem þessi mál höfðu með höndum, að reyna að sjá um, að þeir peningar, sem fyrir hendi voru, væru fyrst og fremst notaðir til þess að greiða með þær vörur, sem nauðsynlegt var að fá inn í landið, og koma því til vegar, að birgðir söfnuðust af þeim, en setja hækkun á þær vörur, sem æskilegt væri að fá inn í landið, en sem frekar var hægt að vera án, án þess að af því stafaði þjóðarvoði.
Samkv. þessum reglum var svo starfað árið 1939 og til þess nú. Þá var sá háttur á því, að viðskmrn. gerði sérstakan lista yfir þær vörur, sem ríkisstj. taldi nauðsynlegt að sætu fyrir, og vörur, sem ríkisstj. vildi hafa hvetjandi áhrif á, að innflytjendur flyttu til landsins. Á þessum tímum er líka eðlilegt að hafa náið samband við innflytjendur og reyna að auka innflutninginn, og enn fremur var skorað á þá að nota sitt eigið lánstraust.
Ég er ekki vel undir það búinn að greina nákvæmlega frá því, hvaða vörur voru sérstaklega færðar í þennan flokk. En ég get minnzt á nokkrar þeirra. Í þessum fl. var fyrst og fremst öll kornvara og matvæli erlend, sem óhjákvæmilegt var að flytja inn, nýlenduvara, kol, salt, olíur, benzín og allar útgerðarvörur, hverju nafni sem nefndust, tilbúinn áburður, landbúnaðarverkfæri, allar nauðsynjar til landbúnaðarframleiðslu og iðnaðarvörur til nauðsynjaframleiðslu. Enn fremur nauðsynlegustu rafmagnsvörur, margar tegundir, efni til skipa- og bátasmíða, byggingarefni til viðhalds og endurnýjunar og varahlutir í vélar. Einnig lyfjavörur og umbúðir og aðrar slíkar vörur og ýmsar aðrar vörutegundir, sem of langt yrði upp að telja.
Þegar ófriðurinn skall á, var þessari starfsemi haldið áfram og lagt í þetta aukið starf. Og hefur sá háttur verið á því hafður síðan að fylgjast með því, hvað til er af þessum vörum í landinu og hvetja innflytjendur til að annast innkaupin eins og ríkisstj. hefur þótt nauðsynlegt, að þau yrðu framkvæmd; því að ríkisstj. hefur ekki viljað taka innflutninginn úr höndum innflytjenda, þó að hún hafi lítils háttar annazt innkaup sjálf. Ríkisstj. hefur líka reynt að sjá um, að gjaldeyrir væri fyrir hendi til þess að kaupa þessar vörur inn í eins ríkum mæli eins og innflytjendurnir vildu kaupa þær, og að skipakostur okkar yrði notaður til þess að flytja vörur þessar til landsins. Stj. hefur reynt að styðja að því, að hægt væri að fá erlend skip til þess að flytja þessar vörur, að svo miklu leyti sem okkar skip ekki nægðu til þess. En við eigum ekkert tankskip til þess að flytja olíur og benzín. Okkar skip hafa ekki einu sinni við að flytja að okkur matvörur og stykkjavörur. Þess vegna hefur orðið að flytja öll kol, sem togararnir hafa ekki getað flutt, sem þeir þó hafa flutt frá Englandi eins og þeir hafa getað, á erlendum skipum að mestu leyti, og sömuleiðis salt. Stj. hefur þannig reynt að láta nota sem bezt okkar skip til þessara vöruflutninga til landsins og reynt að fá erlend skip til þess að flytja það, sem okkar skip hafa ekki getað flutt. Þetta hefur stj. gert frá stríðsbyrjun. Framan af stríðinu gekk þetta allvel, enda söfnuðust þá mjög miklar kolabirgðir í landinu, því að ríkisstj. keypti farma af kolum, til þess að hér söfnuðust fyrir verulegar kolabirgðir. Fyrstu mánuðina gekk þetta greiðlega, og framan af árinu 1940 gekk einnig greiðlega að fá skip til þessara flutninga. En síðan fór að bera á erfiðleikum á að fá erlend skip til þessara flutninga. Síðan í september s. l. hefur sendimaður Íslands í London stöðugt reynt að útvega skip til kolaflutninga hingað, en hefur ekki getað útvegað nema 3 skip til þeirra flutninga. En þetta hefur orðið til þess, að dregið hefur úr þeim kolainnflutningi, sem annars hefði verið.
Þannig hefur verið sú skipan, sem fylgt hefur verið um innflutning á þessum meginnauðsynjum, eins og ég gat um áðan, og væri kannske ástæða til þess að fara mörgum orðum um ýmislegt, sem gerzt hefur í því sambandi, þó að ég sleppi því að þessu sinni. Þessar vörur, sem ég hef þannig vikið að, þær mynda mikinn meiri hl. af öllu því vörumagni, sem flutt er inn í landið á hverjum tíma, að magni til, og mjög mikinn meiri hl. einnig að verði til, og þess vegna get ég fullvissað hv. þm. Vestm. um það, að hann þarf ekki að óttast um það, að þessar vörur hafi ekki ætíð verið reynt að draga til landsins eins og innflytjendur frekast hafa viljað kaupa þær inn og möguleikar hafa verið fyrir hendi til að greiða vörurnar og fá skip til þess að flytja þær, ekki aðeins frá byrjun styrjaldarinnar, heldur einnig fyrir þann tíma.
Þá er hitt atriðið, hvort aðrar vörur en ég hef nefnt, og sumar hverjar eru nauðsynjavörur, hefði ekki verið rétt að flytja meira inn eftir að peningarnir hefðu verið orðnir nógir til þess að greiða með erlendis, og hvort ekki hefðu safnazt fyrir í Bretlandi fjármunir fram yfir það, sem orðið hefði að vera, ef innflutningur hefði ekki verið hindraður. Og það er aðalatriðið í því, sem hér hefur verið nefnt. Áður en ég kem að því í einstökum atriðum, vil ég fyrst minnast á, að haustið 1939 var þannig ástatt hér, að gjaldeyrisörðugleikar voru mjög miklir og verzlunarskuldir manna við önnur lönd talsvert verulegar, sumpart verzlunarlán fyrir vörur til landsins, ekki allar gjaldfallnar, en sumpart líka gjaldfallnar skuldir, sem ekki hafði verið hægt að greiða. Nú bar svo við, er styrjöldin hófst, að nær allir, sem seldu til Íslands, kröfðust þess að fá greiddar eldri skuldir um leið og afhentar voru nýjar vörur, og jafnframt kröfðust þeir þess, að greiddar væru út í hönd þær vörur, sem sendar voru til landsins. Styrjöldin hafði þessi áhrif yfirleitt á verzlun landa á milli. Af þessu leiddi, að fyrstu mánuði styrjaldarinnar þurfti að borga eldri skuldirnar og gjaldföllnu skuldirnar á sama tíma og innflutninginn. Og eins og menn muna frá síðasta þingi, sem haldið var vorið 1940, þá var aðaláhyggjuefni manna kannske ekki endilega það, hvort vörur fengjust fluttar til landsins, heldur hvort væri hægt að finna peninga til þess að borga þær nauðsynjar, sem þurfti að kaupa til landsins. Og þetta átti ekki aðeins við um það, sem átti að greiða í því, sem menn kölluðu fyrir styrjöldina frjálsan gjaldeyri, heldur líka um þá vöru, sem átti að greiða í sterlingspundum. Þróunin var þannig, að um miðjan júní 1940 skulduðu bankarnir álíka mikið erlendis eins og þeir gerðu á sama tíma árið áður. M. ö. o. yfirfærslur út úr landinu í sterlingspundum voru svo miklar, að við höfðum ekki alveg við að greiða þær eins og þurfti fram í júní 1940. Og í apríl og maí það ár höfðu menn af þessum málum mjög miklar áhyggjur. Það eina, sem við vissum þá um útflutninginn, var, að ísfiskur seldist mjög vel og þorskalýsi var prýðilega seljanlegt, þ. e. var með góðu verði. Annars vissum við ekkert um framtíðina, og við vissum þá ekkert, hvort hægt yrði að selja síld eða gera út á síld. Í júní 1940 var sterlingspundaekla hér það áberandi, að bankarnir kepptust um það að fá fyrstu innborganirnar, sem herinn gerði hér, til þess að standa undir sínum nauðsynlegu greiðslum og kostnaði. Og það var fyrir það, að eftirspurnin eftir sterlingspundunum var svo mikil meðan verið var að hreinsa til í þessum viðskiptum, sem ég gat um áðan.
Af þessum ástæðum öllum saman, sem hér hafa verið raktar, neyddumst við til þess að fylgja þeirri stefnu, að gefa út mjög takmörkuð innflutningsleyfi fyrir ýmsum vörutegundum, sem annars hefði verið æskilegt að geta náð í frá útlöndum, og má þar nefna vefnaðarvörur og búsáhöld og ýmislegt skran, sem ekki er hægt að telja hér upp, og raunar var reynt að ná í þessar vörur ásamt öðrum, sem meiri áherzla var lögð á að flytja inn, eftir því sem gjaldeyrismöguleikar voru fyrir hendi.
Þannig var ástatt fram á mitt árið 1940, greiðsluörðugleikar, sem öðrum þræði mótuðu starfsaðferðirnar, og hins vegar mikil þörf fyrir að safna inn í landið birgðum af vissum nauðsynjavörutegundum. Það er ekki fyrr en kemur fram í júnílok, er samningurinn er gerður við Breta um sölu á síldarafurðum og auðséð er, að hægt verður að gera út á síldveiðar, að útlitið fer til muna að batna, þó að enginn gerði sér þá grein fyrir því, að svo glæsileg útkoma yrði á síldveiðunum sem raun varð á. Það er þá, sem viðhorfið breytist. Og þá breytist líka sú skipan, sem fylgt hafði verið, og eftir það var farið að slaka á innflutningshömlunum frá því, sem áður hafði verið. Og þá fór innflutningur að aukast.
Þróunin síðan hefur verið þessi, eins og ég sagði áðan, að haldið hefur verið áfram að flytja inn nauðsynjavörur, og ríkisstj. hefur fylgzt með því og hvatt innflytjendur til að flytja inn vissar vörur. En vegna ónógs skipakosts hefur ekki verið hægt að safna fyrir í landinu eins miklum birgðum af þessum vörum og æskilegt hefði verið. En nú eru sízt minni birgðir í landinu af þeim vörum en á venjulegum tímum. En um hinar vörurnar, og þá sérstaklega vefnaðarvörurnar, er það að segja, að innflutningur af þeim hefur verið mikill á árinu 1940 og eins það, sem af er þessu ári, þannig að vefnaðarvörubirgðir eru nú óvenjulega miklar taldar í landinu.
Ég held, að ég hafi nú minnzt á flestar vörutegundir, sem máli skipta, nema byggingarefni, en ég sé sérstaka ástæðu til að minnast á það.
Það hefur verið töluvert talað um það á síðustu mánuðum að breyta sterlingspundum, sem við eigum í Englandi, í það, sem kallað hefur verið raunveruleg verðmæti. Og byggingarefni er náttúrlega meðal þeirra vörutegunda, sem þá ætti ekki sízt að koma til greina í því sambandi á venjulegum tímum. En þegar við tölum um byggingarefni, getum við takmarkað okkur við að tala um þrjár vörutegundir, timbur, járn og sement. Timbur hefur ekki verið fáanlegt í Bretlandi frá stríðsbyrjun, og svo mikil tregða hefur verið á því að fá járn frá Bretlandi eftir að styrjöldin hófst, að á þeim tíma hefur orðið að flytja mest af því járni, sem við höfum fengið, frá Bandaríkjunum. Eftir að Danmörk lokaðist, hefur yfirleitt ekki verið hægt að fá sement í Englandi. Af þessu sjáum við, að ef eitthvað hefur verið vanrækt í þessum efnum, þá er það ekki innflutningur á byggingarefni. Ef eitthvað hefur verið vanrækt, þá er það innkaup á vefnaðarvöru framan af árinu 1940. Það getur vel verið, að það hefði verið hægt að kaupa eitthvað meira inn af vefnaðarvöru á þeim tíma en gert var, ef það hefði verið leyft. En þá er það að athuga, að alveg fram í júní 1940 var það áhyggjuefni okkar, hvernig við gætum borgað innfluttar vörur okkar, þannig að það var ekki tímabært fyrr en þá í júní að líta sömu augum á þessa hluti og við gerum nú. Við getum náttúrlega deilt um það, hvort við hefðum átt að flytja inn meira af búsáhöldum frá Englandi. Og þó að það hefði getað skipt milljónum, þá hefði það ekki munað neitt verulegu um það til eða frá um þær miklu fjárfúlgur okkar í Englandi, sem við reiknum með nú. Hitt vil ég minna á, að landið mun nú vera óvenjulega vel birgt af vefnaðarvöru.
Ég skal þá loks benda á það í þessu sambandi, sem stóð aðallega í vegi fyrir því, að meira væri flutt inn frá Englandi en raun hefur á orðið á. árinu 1940, þó að vísu væri mikið flutt inn á því ári. Það, sem stóð mest í vegi fyrir því, var tregða á að fá vörurnar afhentar vegna truflana á framleiðslu og viðskiptum öllum. Mér er kunnugt um eitt sérstakt tilfelli t. d., þar sem verzlunarfirma, sem pantaði stóra vörusendingu af vefnaðarvörum í júní eða júlí s. 1., en fékk hana ekki fyrr en í desember. Sjálfsagt mætti nefna fleiri slík dæmi. Ég sé svo ekki ástæðu til að fara lengra út í þetta mál, þó að það sé stórt. Enda hef ég nú drepið á aðaldrætti þess.
Ég get aðeins nefnt það svona til dæmis, áður en ég yfirgef þetta, til þess að sýna, hvort það hafi staðið á innflutningsleyfum, að þau væru veitt árið 1940, — þá var innflutningur leyfður fyrir 2 millj. kr. og þar að auki voru búsáhöld á frílista að miklu leyti frá því í ágúst til ársloka. Þó var ekki flutt inn út á þessi leyfi fyrir meira en 1173000 kr., sem var fyrir það, að illa gekk að fá þær vörur afhentar í Bretlandi, ekki aðeins á fyrri hluta ársins, heldur líka á seinni hluta ársins. Ég held, að við verðum að gera okkur það ljóst, að við höfðum ekki möguleika til þess á síðast liðnu ári, og munum ekki hafa í framtíðinni, meðan öllu háttar eins og nú er, að breyta þessum innieignum okkar í Bretlandi í raunveruleg verðmæti, nema að mjög takmörkuðu leyti, af þeirri einföldu ástæðu, að þjóðir, sem eiga í hernaði, gleypa ekki alltaf við því að láta af höndum frá sér ýmsar vörutegundir, og hafa því ekki á boðstólum nema takmarkað vöruval, því að framleiðslan er miðuð við hernaðarþarfir, og ekki síður er það af annarri ástæðu, að við getum ekki breytt innieignum okkar þannig, nefnilega því, að skipakostur er ekki fullnægjandi fyrir hendi til þess að flytja miklar vörur til landsins. Og ég vil líka henda á í því sambandi, að þau skip, sem siglt hafa milli Englands og Íslands á vegum Eimskipafélags Íslands, þau hafa allt síðast liðið ár haft fullfermi að flytja af vörum til landsins eins og þau mest hafa komizt yfir, og venjulega hafa legið eftir vörur, sem þau gátu ekki tekið að sér að flytja.
Það er því miður margt annað en útgáfa innflutningsleyfa á Íslandi, sem máli skiptir um innflutning til landsins, þegar styrjaldarástand er komið.
Ég hef ekki gert að umtalsefni innflutning frá Ameríku, enda beindi hv. þm. Vestm. fyrirspurn sinni þannig, hvort innflutningsmöguleikar frá Bretlandi hefðu verið notaðir eins og æskilegt hefði verið árið 1940. En þegar við lítum til baka yfir árið 1940, þá verðum við að setja okkur í þau spor, sem við stóðum í þá, en ekki miða við það viðhorf, sem nú er, því að framan af því ári var svo gerólíkt viðhorf því, sem skapaðist síðar á árinu. Því að það er ekki fyrr en í júlí sem byrjuðu að myndast innieignir í Bretlandi. Og frá því í júlímánuði, að innieignir byrjuðu að myndast, og þangað til í byrjun janúar árið eftir (jan. s. l.), held ég að þessi innieign hafi verið orðin á þriðju millj. sterlingspund, á 6 mánuðum þannig yfir 2 millj. sterlingspunda. Framan af árinu vissum við ekki neitt um gjaldeyrismöguleika ársins í heild. En þegar kemur fram á mitt ár, fer þetta að breytast og gerbreytist svona algerlega. Það er næsta fróðlegt í þessu sambandi að athuga sölu togaranna.
Það, sem gerir þessa breyt., er þrennt. Verðið á ísfiskinum tvöfaldast a. m. k. eða jafnvel margfaldast, þegar kemur fram á sumarið. Brezki herinn flytur inn peninga vegna herkostnaðar, miklu meiri heldur en okkur nokkurn tíma grunaði fyrirfram, og í þriðja lagi voru síldveiðarnar með afbrigðum tekjumiklar. Þetta þrennt hefur átt ríkastan þátt í að skapa þessa þróun, sem er algerlega einsdæmi í okkar viðskiptalífi, og gerbreyta svona ástandinu í þeim efnum á örfáum mánuðum.
Þá ætla ég, áður en ég vík að fyrirspurn hv þm. Vestm. um sterlingspundabindinguna, að minnast á tvær spurningar hans. Fyrst er þá þetta: Kaupa íslenzku bankarnir sterlingspund af öðrum aðilum en útflytjendum, og hve mikið hefur verið keypt af pundum af öðrum sterlingspundaeigendum? Hv. þm. spyr ekki um þetta af því, að hann viti það ekki, og er ekkert um það að segja. En íslenzku bankarnir kaupa sterlingspund af Bretum og láta þeim í té í staðinn íslenzka peninga til þess að standast greiðslur hér. Og samkvæmt því samkomulagi, sem gert hefur verið, eru þessi viðskipti gerð. Hins vegar mun ég ekki gefa upplýsingar um það nú, af því að ég hef þær ekki á reiðum höndum og tel heldur ekki ástæðu til þess á þessu stigi, hve háar upphæðir hér er um að ræða. Það gæti ég þá tekið til athugunar síðar, ef ástæða þykir til.
Þá óskar hv. þm. Vestm. að fá að vita, hvernig fyrirkomulag sé nú á úthlutun erlends gjaldeyris, og í því sambandi vil ég upplýsa, að það er óbreytt frá því, sem áður var, að öðru leyti en því, að það er samningsatriði á milli íslenzku ríkisstj. annars vegar og brezku ríkisstj. hins vegar, hvað fæst af dollurum til yfirfærslu frá Bretlandi til Ameríku. Og samkvæmt því eru allar dollarayfirfærslur gerðar í samráði við Breta. Þessu er hagað þannig, að menn senda inn umsóknir sínar um dollara til innflutnings- og gjaldeyrisnefndar, sem síðan tekur þær til afgreiðslu í samráði við umboðsmann Breta hér, hvað hægt sé að afgreiða af dollurum upp í þessar umsóknir. Hingað til hefur það verið svo, að dollarar hafa verið látnir fyrir helztu nauðsynjum, sem áður voru fluttar inn frá Bandaríkjunum. Þetta fyrirkomulag stafar af því, að samkvæmt brezkri gjaldeyrislöggjöf og gjaldeyrisfyrirkomulagi Breta er ekki hægt að yfirfæra til annarra landa af pundainnieignum, nema með sérstöku samþykki brezkra yfirvalda.
Ég hygg nú, að ég hafi minnzt á spurningar hv. þm., nema þær, sem snerta pundabindinguna. Ég mun svara sumum þeirra, en láta nánari svör við sumum bíða.
Hv. þm. spurði, hverju innieign Landsbankans hefði numið, þegar hömlurnar voru settar. Ég verð að viðurkenna, að ég man þetta ekki nákvæmlega, en það mun hafa numið rúmlega 2 millj. punda.
Hv. þm. minntist á það í sambandi við þessa fyrirspurn, að það fyrirkomulag hefði verið haft áður á viðskiptunum, að gjaldeyririnn hafi ekki verið keyptur á föstu gengi, heldur hafi hann verið tekinn af útflytjendum inn í sérstakan reikning, með öðrum orðum tekinn í umboðssölu. Hér mun hv. þm. eiga við það, hvernig þessu var háttað með ríkismörkin og lírurnar. Mér fannst á honum, að hann liti svo á, að fyrr hefði mátt fara inn á þessa braut með pundin, ef það hefði átt að vera hliðstæð aðferð og notuð var fyrir styrjöldina gagnvart öðrum löndum. Ég vil benda hv. þm. á það, að hér er ólíku saman að jafna. Þegar þessi aðferð var notuð við mörkin og lírurnar, mun það hafa þótt kleift, vegna þess að það var vitað mál, að það mundi aldrei líða mjög langur tími frá því, að útflytjendurnir lögðu til gjaldeyrinn og þangað til búið var að selja hann. Af þessum ástæðum þótti kleift að viðhafa þessa aðferð. Og raunverulega var alltaf búið að selja gjaldeyrinn fyrirfram, með því að það voru tekin lán í þessum löndum. Aftur á móti er það svo með innilokun pundanna, að enginn veit, hversu lengi eigendur pundanna þurfa að bíða eftir að fá þau seld, vegna þess hve mikið er til af pundum í hlutfalli við eftirspurnina. Það var einmitt af þessum ástæðum, að bankarnir og ríkisstj. vildi ekki grípa til þess ráðs að hætta að taka við pundum, fyrr en innieignir bankanna voru orðnar það miklar, að það réttlætti fullkomlega slíka ráðstöfun, sem má kalla neyðarráðstöfun.
Þá spurði hv. þm. að því, eftir hvaða reglum gjaldeyriskaupanefndin starfaði, að öðru leyti en sérstaklega hefur verið auglýst um andvirði ísfiskjar. Þetta er spurning, sem ég verð að sumu leyti að áskilja mér frest til að svara. Á þessu stigi vildi ég aðeins segja það, að ég hygg, að enn sem komið er muni ákv. 1. ekki hafa verið beitt gagnvart öðru en ísfiskinum, enda sáralítið annað komið til greina, síðan 1. voru sett. Fastar reglur um annað munu heldur ekki hafa verið settar enn. Þær hafa verið í undirbúningi, en hefur dregizt úr hömlu að setja þær, vegna annríkis í sambandi við önnur mál.
Þá gætti nokkurrar óánægju hjá hv. þm. viðvíkjandi því, hvernig snúizt væri við beiðnum frá eigendum innilokuðu pundanna um notkun þeirra til kaupa á nauðsynjum til útgerðarinnar og viðhalds skipanna. Ég verð að segja, að ég á erfitt með að fara út í einstök dæmi, sem hv. þm. tók, en vildi óska eftir, að hann gæfi mér frekari upplýsingar um, hvað það er, sem sérstaklega hefur stungið hann í augun í þessu sambandi, og mun ég þá svara því síðar. Ég ætla hins vegar nú að segja nokkur orð um þetta atriði almennt. Eins og gefur að skilja, er pundainnilokunin byggð á því, að þessi pund verði ekki notuð til þess að greiða þær kröfur, sem gera mætti ráð fyrir að bankarnir gætu selt gjaldeyri til af sínum vanalegu pundatekjum. Ef þetta væri gert, er augljóst mál, að pundainnilokunin færi út um þúfur. Á þessu er það byggt, ef neitað er um að láta innilokuð pund fyrir síldartunnum og salti, enda væri slíkt óeðlilegt, þegar það er athugað, að pundin eru ekki lokuð inni að öðru leyti en því sem söluandvirði íslenzkra framleiðsluvara fer fram úr tilkostnaði. Ef hér væri t. d. um síld að ræða, mundi ekki vera lokaður inni nema sá hluti af andvirði síldarinnar, sem væri umfram hráefnisverðið og allan kostnað og sæmilegan ágóða. Það mætti eins hneykslast á því, að ekki væri leyfð pund fyrir kolum og þess háttar, því þegar um ísfisk er að ræða, þá er ekki lokað inni annað en afgangurinn, þegar búið er að reikna með öllum kostnaði og m. a. s. nokkrum ágóða.
Ég held, að ég hafi vikið að þeim fyrirspurnum flestum, sem hv. þm. gerði. Vona ég að geta gefið fyllri svör við þeim, sem ég hef nú ekki getað svarað fullkomlega, þegar þetta mál kemur sjálft til umr. hér í d.