03.04.1941
Neðri deild: 30. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (520)

11. mál, utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúar þess erlendis

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu þessa máls. Hún hefur kynnt sér málið rækilega og lagt fram nokkrar. brtt. við frv., sem fyrir lá, og flestar eru þær málsbreytingar, en engar efnisbreytingar, aðrar en þær, sem ráðuneytið taldi æskilegt að gera á frv. sjálfu. Ég sé því ekki ástæðu til að ræða brtt. n., en vil minnast á eitt atriðið, sem kalla má málsbreyt., en það er að láta „utanríkisráðsneyti“ koma í staðinn fyrir „utanríkismálaráðuneyti“. Eins og orðið var upphaflega í frv. var það meira í samræmi við nöfn á okkar ráðuneytum, t. d. dómsmálaráðuneyti, atvinnumálaráðuneyti o. s. frv. En ég játa, að bezt muni fari á því að sleppa hér úr „mála“ og kalla það utanríkisráðuneyti.

Út af þeim almennu hugleiðingum, sem hv. þm. Barð. talaði um í sambandi við utanríkismálin og kostnaðinn við þau, þá erum við sennilega öll sammála um þær megin reglur að sýna svo mikla hagsýni við rekstur þessara mála sem auðið er. En við megum þó ekki gleyma, að þessi mál eru þýðingarmikil fyrir þjóðina í heild sinni, og það gæti orðið dýr sparnaður að skera um of við nögl sér á þessum sviðum. Nú hefur ríkisstj. sérstaklega fylgt þessari reglu, sem hv. þm. benti á, og tekið til athugunar launakjör útsendra fulltrúa á Norðurlöndum, einkum í Noregi og Svíþjóð. En launakjör sendimanna íslenzka ríkisins bæði í New York og London eru langt fyrir. neðan það, sem lægst er greitt á Norðurlöndum, en það er í Noregi. Í þessum borgum er staða sendimannanna alveg sambærileg við stöðu aðalræðismannsins íslenzka í New York, svo að hann ætti að hafa sömu launakjör og þeir. Öll Norðurlöndin hafa sendimenn í Washington, en aðalræðismann í New York, alveg eins og í Þýzkalandi, þar sem aðalræðismaðurinn er ekki í höfuðborginni, heldur í Hamborg, sem er miklu þýðingarmeiri verzlunar- og viðskiptaborg. Eins og ég hef áður sagt, eru launakjör íslenzka aðalræðismannsins lægri en hjá sams konar norskum og sænskum embættismönnum. Ég held, að ríkisstj. hafi byrjað þessar framkvæmdir með því að fara eins gætilega og unnt er, en haft þó um leið í huga að geta fengið hæfa menn til starfsins, og að þeir gætu lifað sómasamlega, þar sem þeir væru búsettir, af þeim launum, sem þeim væru ákveðin. En af því að hv. frsm. minntist á kostnaðinn af þessum málum, og af því að hér er prentuð sem fskj. með nál. skýrsla um þennan kostnað, þykir mér rétt að gera smávegis leiðréttingu strax. Eftir að skýrsla þessi hafði verið samin og send í prentun, höfðu launakjör sendifulltrúa okkar í London verið hækkuð um 50% á síðustu áramótum. Þau voru áður 100 pund á mánuði, en það er langt fyrir neðan það, sem slíkir menn hafa í þeirri borg, og svo hafði dýrtíðin vaxið. Var því engan veginn unnt fyrir sendifulltrúann að búa við þau launakjör, sem upprunalega voru ákveðin, svo að sjálfsagt var að hækka þau um 50%. Ég hygg, að það sé ekki ofreiknað hjá ríkisstjórninni, þó að hún greiði þessum fulltrúa sínum svo há laun, enda eru störf hans fyllilega sambærileg við sams konar stöðu annarra þjóða. Auk þess hefur hann mikið verkefni með höndum, sem er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt.

Út af þeim samanburði, sem hv. frsm. gerði á launakjörum skrifstofustjóra og fulltrúa í utanríkisráðuneytinu, vil ég segja hér örfá orð. Þegar launakjör fulltrúanna eru talin eins og skýrslan sýnir 6436 kr., þá eru þar með talin laun fyrir sérstök störf hjá forsætisráðuneytinu, sem koma ekki beinlínis við utanríkisráðuneytið. Annars hefur hann nokkru lægri laun heldur en skrifstofustjóri.

Viðvíkjandi skrifstofu Sveins Björnssonar og hennar störfum vil ég geta þess, sem ég tók fram við 1. umr. þessa máls, að sendiherrann var kallaður heim af ríkisstjórninni. Eftir að við sáum fram á, að utanríkismálin mundu á okkur hvíla í framtíðinni, var okkur nauðsynlegt að njóta starfskrafta þess manns, sem mesta reynslu hefur á þessu sviði af öllum núlifandi Íslendingum, en það var Sveinn Björnsson sendiherra. Hann hefur nú þegar með skrifstofu sinni unnið mikið starf m. a. útbúið leiðbeiningabók fyrir fulltrúa Íslendinga erlendis. Var mikil þörf á slíkri bók, þar sem ekki var völ á öðru en erlendum bókum um slík efni, sem ekki eru sambærilegar við íslenzka löggjöf og staðháttu. Mun þessi leiðbeiningabók koma út á næstunni. Skrifstofan hefur sömuleiðis unnið að öðrum málum fyrir ríkisstjórnina og hefur haft nóg að starfa til þessa.

Ég vil að lokum þakka hv. allshn. fyrir gott starf í þágu máls þessa.