25.04.1941
Efri deild: 44. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (527)

11. mál, utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúar þess erlendis

Frsm. (Magnús Gíslason) :

Þegar sáttmálinn var gerður við Danmörku 1918 um samband landanna, var eitt af ákvæðum hans það, að Danir eru skyldir að fara með utanríkismál Íslands í umboði þess um það skeið, sem samningurinn átti að vera í gildi. Áður höfðu Danir farið með utanríkismál okkar sem sín eigin mál, Þótt við hefðum aldrei viðurkennt rétt þeirra til þess.

Svo skeður það, að Danmörk er hernumin, og Alþ. ályktar að taka utanríkismálin í okkar hendur, sem af Alþ. var talið óhjákvæmilegt og nauðsynlegt að gera. En það þýðir í sjálfu sér það, að þá verðum við upp á okkar ábyrgð að rækja þessi störf, sem Danir höfðu annars haft á hendi fyrir okkur. Þegar þannig var komið, þótti ríkisstj. ekki hlýða annað en sett yrðu l. og reglur um það, hvernig þessari þjónustu skyldi hagað. Ríkisstj. gaf þess vegna út bráðabirgðal. 8. júní 1940 um þessi mál. Þau bráðabirgðal. voru svo lögð fyrir Alþ. og eru nú hér til umr.

Þetta frv. hefur farið í gegnum Nd. Sú d. hefur gert á því nokkrar breyt., en það eru allt orðalagsbreyt., nema breyt. á 1. gr., sem er nýtt ákvæði um, að utanríkisráðuneyti skuli setja á stofn í Reykjavík, en í frv. stj. var ekkert um þetta.

Allshn. þessarar d. hefur athugað frv. og. orðið ásátt um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt. Þar á meðal taldi n. rétt, að nauðsynlegt væri, að ákvæði væri sett í frv. um, að stofnað yrði sérstakt utanríkisráðuneyti.

Ég skal geta þess, að í frv. eru ákvæði um að heimila ríkisstj. að ákveða með tilskipun, hvar skuli vera sendiráð og ræðismenn. Í framkvæmd hefur þetta enn sem komið er orðið þannig, að sett hafa verið á stofn sendiráð í Stokkhólmi og London, en áður var aðeins eitt sendiráð til, þ. e. sendiráðið í Kaupmannahöfn. Auk þess hefur verið skipaður aðalræðismaður í New York. Enn fremur er ákvæði í þessu frv. um konsúla og ræðismenn, bæði þá, sem ríkisstj. sendir út, og að henni sé heimilt að skipa ræðismenn í öðrum löndum, búsetta þar. Loks eru ákvæði um laun þessara manna. Sendiherrar skulu hafa 10 þús. kr. árslaun, sendifulltrúar 8 þúsund og útsendir ræðismenn 4200. Er auk þess gert ráð fyrir, að þeim verði veitt launauppbót, eftir því sem nauðsynlegt verður talið á hverjum stað.

Ég skal ekki orðlengja um þetta frekar. Eins og ég sagði áðan, leggur n. til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.