23.04.1941
Neðri deild: 43. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

12. mál, loftferðir

Einar Olgeirsson:

Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir yfirlýsingu hæstv. atvmrh. um, að ríkisstj. hefði mótmælt því, að herinn hefði bækistöðvar inni í bænum og gerði flugvöllinn svo nærri honum. En ég vil spyrja hæstv. ráðh.: Hvernig stendur á því, að ríkisstj. hefur ekki tilkynnt þjóðinni þau mótmæli? Ég held, að engin ástæða hafi verið til að þegja yfir þeim. Það er rétt, að það komi fram í blöðum, og komi greinilega fram, að það sé ekki aðeins í óþökk þjóðarinnar, heldur líka ríkisstj., að herliðið hafi bækistöðvar inni í sjálfum bænum. Ég vil mælast til þess við ríkisstj., að ef fleiri slík mótmæli koma fram; verði þau gerð heyrum kunnug.