28.03.1941
Neðri deild: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í B-deild Alþingistíðinda. (563)

15. mál, hegningarlög

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Þetta frv., sem hér er borið fram, er shlj. bráðabirgðal., sem sett voru fyrir nokkru. Til þeirra lágu þau rök, sem öllum munu nú kunnug, og ég geri ekki ráð fyrir, að skýra þurfi mörgum orðum. Það er skýrt í frv. sjálfu, hver tilgangur lagasetningar þessarar er, en hann er fyrst og fremst að koma í veg fyrir allt, sem árekstrum getur valdið og meiri afskiptum hins erlenda hers í landinu af dómsmálum þess og réttarfari. Á því þótti nokkur vafi, hvort 88. og 95. gr. hinna almennu hegningarl. tækju til allra þeirra verka, sem refsa þarf fyrir til að fyrirbyggja árekstra á slíkum tímum, sem nú eru. Frv. gerir því ráð fyrir, að l. séu sett um breyt. á þessum gr. hinna almennu hegningarl., sem sett voru í fyrra. Það má deila um, hvort þetta eigi að gera með slíkri breytingu á þeim l. eða setja um það sérstök lög, því vitanlegt er, að þessi

ákvæði verða úr gildi felld, þegar þær aðstæður eru horfnar, sem geta setning þeirra nauðsynlega.

Þó að ég fari ekki fleiri orðum um frv. nú, er ég að sjálfsögðu reiðubúinn að gera þá grein fyrir því og einstökum atriðum þess, sem óskað kann að verða eftir.