28.03.1941
Neðri deild: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (565)
15. mál, hegningarlög
Bergur Jónsson:
Þetta mál mun fara til n., þar sem ég á sæti, svo að ég mun ekki ræða það hér. En ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., hvort hans lögfræðilegu ráðunautar hafi verið við samning þessa frv., og hvort hann telji alveg nauðsynlegt, að sett séu þessi ákvæði þannig á nýjan hátt, heldur verði hægt að nota hegningarlögin eins og þau voru úr garði gerð síðast. Ég vonast til, að hæstv. ráðh. svari spurningu minni.
Ég ætla ekki að fjölyrða hér um það, sem kom fram í ræðu háttv. 4. þm. Reykv. En ég vil geta þess, þar sem hann talaði um, að lögfræðingar hefðu skapað hugtak um landráð af réttri og rangri tegund, Þá væri vert að athuga það, hvort ekki væri rétt eða röng tegund til af íslenzku hugarfari, sérstaklega hjá þeim mönnum og flokkum, sem miða allar gerðir sínar og störf við fyrir skipanir frá erlendum þjóðum.