16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (57)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Brynjólfur Bjarnason:

Ég get upplýst það, að kærum, sem ég og aðrir hafa sent í dómsmálaráðuneytið hefur ekki verið sinnt, og geri ég því ráð fyrir, að lítið muni stoða, þó að ég og aðrir færu enn að senda þangað kærur. Ég get lagt fram sannanir um það, að allt skríður út í lús á Litla-Hrauni. Ég get lagt fram skyrtur, sem hafa verið soðnar, og eru þær svartar eftir nit.

Eggert Þorbjarnarson og aðrir hafa skrifað bréf til fangahússtjórnarinnar og beðizt lagfæringar á þessu, og væntanlega hefur eitthvað verið lagfært. Annars þótti mér vænt um, að hæstv. dómsmrh. skyldi viðurkenna, að það væri réttur orðrómur, að sú ráðstöfun að loka fangana inni væri sérstök refsiráðstöfun, og að sending Hallgríms Hallgrímssonar til Reykjavíkur væri til komið af rógi. Hann sagði, að verið hefði um mótblástur að ræða, og slíkar upplýsingar hlýtur hann að hafa frá einhverjum fanganna. Eru líkur fyrir því, að hér sé um einn ákveðinn fanga að ræða, sem vill sleikja sig upp við yfirvöldin, til þess að fá náðun. Er margt, sem bendir á, að þessi grunur muni reynast réttur. Er það skylda hæstv. dómsmrh, að reyna að fá þessu kippt í lag og sjá um, að fangavörðurinn sé settur af, ef svo reynist, að hann er ekki starfi sínu vaxinn. Það er nógu mikið hneyksli, að pólitískir fangar séu hafðir innan um glæpamenn, sem er verra en var í Rússlandi á keisaratímunum, þó þar við bætist ekki, að mætir menn, eins og Hallgrímur Hallgrímsson og Eggert Þorbjarnarson, þurfi að vera seldir undir handahófsrefsingar menningarsnauðra bitlingamanna.